Landaður afli íslenskra skipa í mars var 118.448 tonn sem er 25% minni afli en í mars 2018. Aflasamdrátturinn skýrist nær eingöngu af minni loðnuafla en engin loðna veiddist í mars, samanborið við tæp 82 þúsund tonn í mars 2018.
Landaður afli íslenskra skipa í mars var 118.448 tonn sem er 25% minni afli en í mars 2018. Aflasamdrátturinn skýrist nær eingöngu af minni loðnuafla en engin loðna veiddist í mars, samanborið við tæp 82 þúsund tonn í mars 2018. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Þar segir enn fremur að rúmlega þreföldun í kol-munnaafla nái ekki að vega upp afla-brestinn í loðnu, en kolmunnaafli í mars var rúm 64 þúsund tonn. Botnfiskafli nam 52 þúsund tonnum í febrúar og minnkaði um 2% miðað við sama mánuð 2018. Heildarafli á 12 mánaða tímabili frá apríl 2018 til mars 2019 var tæplega 1.306 þúsund tonn sem er aukning um 6% miðað við sama tímabil ári fyrr. Aukningin er vegna meiri botn- og flat-fiskafla og samdráttur í uppsjávarafla er minni en vænta má vegna meiri kolmunnaafla. Afli í mars, metinn á föstu verðlagi, var 15,6% minni en í mars 2018, að því er Hagstofan greinir frá.