Körfubolti
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Martin Hermannsson náði ekki að jafna afrek Jóns Arnórs Stefánssonar og vera í sigurliði í Evrópukeppni í körfuknattleik. Martin varð að sætta sig við silfurverðlaunin í Evrópubikarnum eftir að lið hans, Alba Berlín frá Þýskalandi, tapaði þriðja og síðasta úrslitaleiknum gegn Valencia á Spáni, 89:63, í gærkvöld.
Jón Arnór er þar með áfram eini Íslendingurinn sem hefur unnið Evrópumót félagsliða í íþróttinni. Það gerði hann vorið 2005 með rússneska liðinu Dinamo frá Pétursborg þegar það vann BC Kiev 85:74 í úrslitaleik Evrópudeildar FIBA.
Martin og félagar byrjuðu leikinn frábærlega frammi fyrir 8.000 áhorfendum í Valencia og komust í 11:0. Heimamenn minnkuðu þann mun síðan jafnt og þétt og voru komnir með hann niður í eitt stig þegar fyrsta leikhluta lauk, 18:17 fyrir Alba.
Valencia hóf síðan annan leikhluta með því að skora þrettán stig gegn tveimur og var þá komið í 30:20. Mest munaði fimmtán stigum á liðunum fyrir hlé og þegar flautað var til hálfleiks var staðan 46:33.
Sá munur hélst nokkuð frameftir þriðja leikhluta en undir lok hans komst Valencia mest 22 stigum yfir, 63:41. Martin átti lokaorðið í leikhlutanum með þriggja stiga körfu fyrir Alba, 63:44.
Í fjórða leikhluta varð fljótlega ljóst að Martin og félagar ættu ekki möguleika. Munurinn hélst sá sami lengi vel og þegar hann jókst enn frekar og staðan var orðin 83:56 þegar þrjár mínútur voru eftir voru úrslitin ráðin.
Martin lék í 21 mínútu í gærkvöld og náði sér ekki á strik. Hann skoraði 5 stig og átti 2 stoðsendingar fyrir Alba.