Eftir góða pásu frá sviðsljósinu steig Selena Gomez aftur á svið um helgina á tónlistarhátíðinni Coachella. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar söngkonan birtist óvænt með DJ Snake, Cardi B og Ozuna og söng með þeim lagið „Taki Taki“.

Eftir góða pásu frá sviðsljósinu steig Selena Gomez aftur á svið um helgina á tónlistarhátíðinni Coachella. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar söngkonan birtist óvænt með DJ Snake, Cardi B og Ozuna og söng með þeim lagið „Taki Taki“. Gomez hefur ekki komið fram opinberlega síðan í maí í fyrra þegar hún söng með vinkonu sinni Taylor Swift á tónleikaferðalagi þeirrar síðarnefndu. Undanfarna mánuði hefur hún einbeitt sér að andlegu heilsunni en í október skráði hún sig inn á meðferðarstofnun vegna kvíða og þunglyndis og hefur verið nánast ósýnileg á samfélagsmiðlum síðan.