Björn Óli Hauksson
Björn Óli Hauksson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Björn Óli Hauksson hefur látið af störfum sem forstjóri Isavia samkvæmt tilkynningu sem barst frá félaginu í gærkvöldi. Heimildir Morgunblaðsins herma að Birni Óla hafi verið sagt upp störfum samkvæmt ákvörðun stjórnar félagsins þar um.

Björn Óli Hauksson hefur látið af störfum sem forstjóri Isavia samkvæmt tilkynningu sem barst frá félaginu í gærkvöldi. Heimildir Morgunblaðsins herma að Birni Óla hafi verið sagt upp störfum samkvæmt ákvörðun stjórnar félagsins þar um. Elín Árnadóttir aðstoðarforstjóri og Sveinbjörn Indriðason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu annast daglegan rekstur félagsins þar til nýr forstjóri verður ráðinn.

Í fréttatilkynningunni frá Isavia segir Björn Óli að hann hafi starfað hjá fyrirtækinu í meira en tíu ár, og að sá tími hafi verið viðburðaríkur og skemmtilegur. „Ég hef fengið að taka þátt í uppbyggingu á Isavia sem hefur verið einstakt. Einnig hef ég fengið tækifæri til að vinna með frábæru starfsfólki í umhverfi þar sem áskoranir eru og hafa verið miklar. Ég er þakklátur fyrir það hversu vel hefur tekist til og nú er að hefjast enn einn kaflinn í sögu Isavia. Í því ljósi tel ég að nú sé góður tími fyrir nýtt fólk til að taka við keflinu,“ segir Björn Óli í tilkynningunni.

Orri Hauksson, stjórnarformaður Isavia, þakkaði Birni Óla fyrir starf sitt fyrir félagið um langt skeið. Segir í tilkynningu Isavia að stjórnin virði ákvörðun Björns Óla um að nú sé góður tímapunktur til að láta af störfum og verði hafist handa við að ráða nýjan forstjóra.

Skammt stórra högga á milli

Einungis er tæpur mánuður liðinn frá því að Ingimundur Sigurpálsson lét af starfi stjórnarformanns á aðalfundi félagsins en hann hafði þá sinnt því starfi í sex ár. Vék hann um leið úr stjórn, en Orri Hauksson tók hans stað.

Þá boðaði Björn Óli um síðustu mánaðamót hagræðingu í starfsemi Isavia og fækkun sumarstarfsfólks á Keflavíkurflugvelli í kjölfar gjaldþrots WOW air fyrr í vor.