Mikið tjón Talið er að það taki mánuði að hreinsa Notre Dame eftir að þak kirkjunnar og turnspíra eyðilögðust í eldinum sem kviknaði á mánudag. Það gæti einnig tekið mánuði að meta skemmdir sem urðu á listmunum í kirkjunni.
Mikið tjón Talið er að það taki mánuði að hreinsa Notre Dame eftir að þak kirkjunnar og turnspíra eyðilögðust í eldinum sem kviknaði á mánudag. Það gæti einnig tekið mánuði að meta skemmdir sem urðu á listmunum í kirkjunni. — AFP
Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Villa í hugbúnaði er talin hafa orðið til þess að öryggisverðir fóru á rangan stað í dómkirkjunni Notre Dame í París á mánudag þegar tölvukerfi hennar varaði fyrst við eldi í byggingunni, að sögn franskra fjölmiðla í gær. Þeir segja að dýrmætar mínútur hafi þar með farið í súginn.

Bogi Þór Arason

bogi@mbl.is

Villa í hugbúnaði er talin hafa orðið til þess að öryggisverðir fóru á rangan stað í dómkirkjunni Notre Dame í París á mánudag þegar tölvukerfi hennar varaði fyrst við eldi í byggingunni, að sögn franskra fjölmiðla í gær. Þeir segja að dýrmætar mínútur hafi þar með farið í súginn.

Tölvukerfið varaði við eldi í kirkjunni klukkan 18.20 að staðartíma en öryggisverðirnir fundu engan eld og töldu að viðvörunin hefði verið tilefnislaus, að því er franska blaðið Le Parisien hefur eftir heimildarmönnum sínum. 23 mínútum síðar, klukkan 18.43, fór viðvörunarkerfið í gang aftur. Öryggisverðirnir hringdu ekki í slökkviliðið fyrr en þeir sáu um þriggja metra langar eldtungur í neðsta hluta turnspírunnar sem eyðilagðist í eldinum. Le Parisien segir að villa í hugbúnaði hafi valdið því að öryggisverðirnir leituðu að eldinum á röngum stað í byggingunni.

Endurreist innan fimm ára?

Viðarþak kirkjunnar eyðilagðist í brunanum, auk turnspírunnar, en slökkviliðinu tókst að bjarga meginbyggingunni og tveimur turnum hennar. Laurent Nuñez, aðstoðarinnanríkisráðherra Frakklands, hefur sagt að aðeins hafi munað um 15-30 mínútum að slökkviliðið hafi ekki getað bjargað dómkirkjunni.

Fyrirtæki, einstaklingar og borgarstjórn Parísar höfðu í gær lofað fjárframlögum að andvirði nær milljarðs evra, sem svarar 135 milljörðum króna, til að endurreisa Notre Dame eftir brunann. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur lofað því að dómkirkjan verði endurreist innan fimm ára. Hann sagði í sjónvarpsávarpi í fyrrakvöld að kirkjan yrði „jafnvel enn fallegri“ eftir að viðgerðunum lyki og gaf til kynna að þeim ætti að ljúka áður en Ólympíuleikarnir verða haldnir í París árið 2024. Nokkrir sérfræðingar í viðgerðum á gömlum og sögufrægum byggingum hafa látið í ljós efasemdir um að hægt verði að endurreisa kirkjuna á svo skömmum tíma og sagt að það geti tekið áratugi.

Édouard Philippe, forsætisráðherra Frakklands, sagði í gær að arkitektum hvarvetna í heiminum yrði boðið að leggja fram tillögur að endurreisn kirkjunnar. Hann sagði að til greina kæmi að kirkjan yrði án turnspíru og benti á að hún hefði verið þannig í áratugi. Enn fremur kæmi til greina að endurreisa turnspíruna eins og hún var áður en hún eyðilagðist eða reisa nýja spíru sem væri „löguð að tækni og erfiðum úrlausnarefnum okkar tíma“.

Upprunaleg turnspíra NotreDame var tekin niður á árunum 1786-1792 en endurreist 1859-1860 undir stjórn franska arkitektsins Eugene Viollet-le-Duc.

Koparstytta af hana, sem var ofan á turnspírunni, fannst í rústunum inni í kirkjunni í gær. Franska menningarráðuneytið sagði að styttan hefði skemmst en líklega væri hægt að gera við hana. 14

Eiga rétt á
skattaafslætti
» Fyrirtæki sem leggja til fé til endurreisnar Notre Dame eiga rétt á 60% skattaafslætti, skv. frönskum lögum sem heimila slíka afslætti fyrir fjárframlög til menningarmála.
» Franska stjórnin hefur ákveðið að skattaafsláttur einstaklinga sem leggja til minna en þúsund evrur nemi 75%. Fari fjárframlög einstaklinga yfir þau mörk verður afslátturinn 66%.