Ævar Þór Benediktsson hefur samið við Þjóðleikhúsið um að ný gerð af Þínu eigin leikriti verði frumsýnd á næsta leikári í leikstjórn Stefáns Halls Stefánssonar. Nýja verkið byggist á bókinni Þitt eigið ævintýri – Tímaferðalag.
Ævar Þór Benediktsson hefur samið við Þjóðleikhúsið um að ný gerð af Þínu eigin leikriti verði frumsýnd á næsta leikári í leikstjórn Stefáns Halls Stefánssonar. Nýja verkið byggist á bókinni Þitt eigið ævintýri – Tímaferðalag. „Tímaferðalagið verður lengra en Goðsagan, og það verða enn þá fleiri möguleikar, meira að segja geimferðir og grameðlur. Með tímavél að vopni eru möguleikarnir óendanlegir; allt frá upphafi alheimsins til endaloka mannkyns,“ er haft eftir Ævari í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu.