Skíði Vinsæl iðja um páska.
Skíði Vinsæl iðja um páska.
Rósa Margrét Tryggvadóttir rosamargrett@gmail.com Páskarnir eru tími sem fólk nýtir gjarnan í ferðalög um landið. En hvert liggur straumur Íslendinga í páskafríinu?

Rósa Margrét Tryggvadóttir

rosamargrett@gmail.com

Páskarnir eru tími sem fólk nýtir gjarnan í ferðalög um landið. En hvert liggur straumur Íslendinga í páskafríinu?

Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri flugfélagsins Air Iceland Connect, segir í samtali við Morgunblaðið að straumurinn liggi út um allt land um páskana en mikið er um flug vestur, norður og austur. Hann segir áberandi marga fljúga til Ísafjarðar á tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður sem haldin verður 19.-20. apríl. Einnig finnst honum vera meiri spurn en áður eftir því að komast út á land á skíði. Lokað sé í Bláfjöllum og því virðist enn fleiri leggja leið sína á skíðasvæðin á Norður- og Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá Ferðafélagi Íslands eru flestir Íslendingar á þeirra vegum að fara í gönguferðir á Snæfellsjökul sem er gríðarlega vinsæl á þessum tíma. „Fólk bíður í röðum eftir að fá að komast með,“ segir Heiðrún Ólafsdóttir, verkefnisstjóri hjá félaginu.

Ferðafélag Íslands er einnig með skála víða á hálendi Íslands, meðal annars í Landmannalaugum, en Heiðrún segir að lítil aðsókn sé í þá eins og er. Segir hún að veðrið og færðin hafi þar mikil áhrif. Fólk hafi þurft að afbóka og skálunum verið lokað. „Það er bara ófært út af vatnsveðri. Það er ekki hægt að keyra þarna þegar það er svona blautt,“ segir Heiðrún.

Páll Gíslason, framkvæmdastjóri Fannborgar sem rekur ferðaþjónustu í Kerlingarfjöllum, segir nánast enga aðsókn vera að ferðalögum um hálendið um páskana. Hann segist finna fyrir því að hefðin fyrir því að fólk fari á fjöll um páska hafi minnkað. Þá hafi veðrið einnig mikil áhrif á það hvert fólk ferðist í fríinu en hlákan á hálendinu sé ekki hvetjandi fyrir fólk. Áin Blákvísl, sem ferðalangar á leið á Kerlingarfjöll þurfa að fara yfir, geti auk þess verið erfið viðureignar og jafnvel ófær í svona veðri. Páll heldur að margir leggi leið sína upp í sumarbústað í páskafríinu en veit um nokkra sem ætla á fjallaskíði. „Ég held að þetta rok og þessi mikla hláka hafi eyðilagt plön margra,“ segir hann.