Umferð um Hvalfjarðargöngin frá höfuðborgarsvæðinu stöðvaðist um tíma í gær og myndaðist nokkur röð bíla við göngin. Að sögn lögreglu bilaði vörubíll í göngunum en eftir nokkra stund tókst að koma honum aftur í gang.
Umferð um Hvalfjarðargöngin frá höfuðborgarsvæðinu stöðvaðist um tíma í gær og myndaðist nokkur röð bíla við göngin. Að sögn lögreglu bilaði vörubíll í göngunum en eftir nokkra stund tókst að koma honum aftur í gang. Komst umferð aftur í samt lag á fjórða tímanum. Sem kunnugt er voru fjölmargir á faraldsfæti síðdegis í gær þegar páskafríið hófst hjá landsmönnum.