Kyrrsett Isavia hefur hótað því að bjóða upp vél Air Lease Corporation á Keflavíkurflugvelli nema félagið greiði að fullu 2 milljarða skuld WOW air.
Kyrrsett Isavia hefur hótað því að bjóða upp vél Air Lease Corporation á Keflavíkurflugvelli nema félagið greiði að fullu 2 milljarða skuld WOW air.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Isavia stefnir að því að selja Airbus A321-211-vél í eigu bandaríska flugvélaleigufyrirtækisins Air Lease Corporation á uppboði, fallist félagið ekki á að greiða tæplega tveggja milljarða skuld WOW air við Keflavíkurflugvöll innan „sanngjarnra tímamarka“. Þetta kom fram í bréfi sem lögfræðingur Isavia sendi ALC sama dag og WOW air varð gjaldþrota. Samhliða tilkynningunni kyrrsetti Isavia vélina og skipaði stórtækum vinnuvélum við stél og trýni vélarinnar þar sem hún stendur á flughlaði á Keflavíkurflugvelli.

Baksvið

Stefán E. Stefánsson

ses@mbl.is

Isavia stefnir að því að selja Airbus A321-211-vél í eigu bandaríska flugvélaleigufyrirtækisins Air Lease Corporation á uppboði, fallist félagið ekki á að greiða tæplega tveggja milljarða skuld WOW air við Keflavíkurflugvöll innan „sanngjarnra tímamarka“. Þetta kom fram í bréfi sem lögfræðingur Isavia sendi ALC sama dag og WOW air varð gjaldþrota. Samhliða tilkynningunni kyrrsetti Isavia vélina og skipaði stórtækum vinnuvélum við stél og trýni vélarinnar þar sem hún stendur á flughlaði á Keflavíkurflugvelli.

Kyrrsetninguna byggir Isavia á 136. gr. loftgerðalaga nr. 60/1998. Þar segir: „Samgöngustofu og þeim sem starfrækir flugvöll eða flugleiðsöguþjónustu er heimilt að aftra för loftfars af flugvelli uns gjöld eru greidd eða trygging sett fyrir greiðslu vegna þess loftfars sem í hlut á eða annarrar starfsemi hlutaðeigandi eða umráðanda loftfarsins.“

Skuldir hrönnuðust upp

Skuld WOW air við Keflavíkurflugvöll, vegna lendingar- og yfirflugsgjalda höfðu hrannast upp allt frá sumrinu 2018 og til þess dags er félagið varð gjaldþrota í lok mars síðastliðins. Í lok febrúar nam skuld félagsins við flugvöllinn tæpum tveimur milljörðum en frá því í júní í fyrra hafði félagið greitt inn á skuld sína rétt um milljarð króna. Að öðrum kosti hefði skuldin numið 3 milljörðum í lok febrúar síðastliðins. Þetta sýna gögn sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem flugvallaryfirvöld hafa krafið ALC um greiðslu vegna vangoldinna skulda þriðja aðila. Hins vegar herma heimildir Morgunblaðsins að aldrei fyrr í sögu félagsins hafi það verið gert ábyrgt fyrir skuldum sem safnast hafi upp yfir jafn langt tímabil og reyndin var með WOW air. Heimildir Morgunblaðsins herma að fulltrúar ALC hafi leitast við að ná sátt við Isavia svo félagið geti fengið vélina TF-GPA afhenta að nýju, en nýir leigutakar munu bíða eftir því að fá hana í hendur. Isavia hefur hins vegar gert þá ófrávíkjanlegu kröfu að félagið standi skil á allri skuldinni, jafnvel þótt hún sé til komin vegna umsvifa sem byggð voru í kringum fjölda farþegaþota sem ekki voru í eigu ALC.

WOW hafði ekki umráðarétt

Mun forsvarsmönnum Isavia auk þess hafa verið gerð grein fyrir að WOW air sé ekki lengur umráðandi vélarinnar sem um ræðir. Þannig hafi félagið sjálfkrafa misst umráðaréttinn þegar það lagði inn flugrekstrarleyfi sitt til Samgöngustofu að morgni fimmtudagsins 28. mars.

Þegar vélin TF-GPA var kyrrsett í Keflavík var búið að kyrrsetja allar aðrar vélar WOW air á erlendri grundu að beiðni flugvélaleigufyrirtækja, að einni vél undanskilinni, en hún var einnig staðsett á Keflavíkurflugvelli. Sú vél bar einkennisstafina TF-SKY og er einnig í eigu ALC. Þegar ljóst var að Isavia myndi ekki láta vélina sem kyrrsett hafði verið af hendi, óskaði ALC eftir því að TF-SKY yrði fremur tekin sem trygging fyrir greiðslunni á skuld WOW air. Isavia varð ekki við þeirri beiðni þótt ljóst sé að vélarnar, sem báðar eru af gerðinni Airbus A321 séu mun verðmætari en sem nemur skuld WOW við Isavia.

Í hinu óundirritaða samkomulagi milli Isavia og WOW air, sem gert var þegar vanskil síðarnefnda félagsins námu orðið meira en milljarði króna, var gengið út frá því að félagið greiddi upp skuldina í 13 aðskildum greiðslum. Fyrst með sjö gjalddögum frá nóvember 2018 og fram til 1. maí 2019 þar sem hver greiðsla hljóðaði upp á 30 milljónir króna. Þá fimm gjalddagar yfir sumarmánuðina, þegar fjárflæði er hvað mest hjá flugfélögum og að hver gjalddagi hljóðaði upp á 145 milljónir króna. Lokagreiðsluna átti svo að inna af hendi 1. nóvember 2019 upp á tæpar 99 milljónir króna.

Lagði fram eignir þriðja aðila

Í samkomulaginu milli WOW air og Isavia vekja tvö atriði sérstaka athygli. Annars vegar atriði sem lýtur að því að WOW air tryggi Isavia aðgengi að vél í eigu þriðja aðila til kyrrsetningar vegna skulda félagsins við Keflavíkurflugvöll. Hljóðar það ákvæði á þessa leið: „Greiðandi tryggir a.m.k. eina flugvél á flugrekstrarleyfi félagsins sé á Keflavíkurflugvelli eða a.m.k. eina flugvél á flugrekstrarleyfi félagsins sé á leið til Keflavíkurflugvallar og komin með staðfestan komutíma á öllum tímum á gildistíma greiðsluáætlunarinnar.“

Þá vekur einnig eftirtekt að WOW air undigekkst þá kvöð að veita Isavia sömu fjárhagslegu upplýsingar til Isavia meðan skuldin væri til staðar og giltu í skilmálum skuldabréfaútboðs sem WOW air réðist í um miðjan septembermánuð í fyrra. „Skulu þær upplýsingar berast Isavia a.m.k. á sama tíma og þær berast til eigenda skuldabréfanna. Upplýsingarnar skulu sendar á netfangið sveinbjorn.indridason@isavia.is.“