Þór Elís Pálsson
Þór Elís Pálsson
Eftir Þór Elís Pálsson: "Borgarmeirihlutinn ætlar að breyta verslunargötum borgarinnar í göngugötur allt árið. Flokkur fólksins berst gegn þessum vondu vinnubrögðum."

Rétt fyrir borgarstjórnarfund 2. apríl sl. mætti hópur rekstraraðila við Laugaveg og Skólavörðustíg í Ráðhúsið með undirskriftalista og afhenti borgarstjóra, Degi B. Eggertssyni. Ástæða undirskriftanna var að til stendur, af hálfu meirihlutans í borginni, að loka alfarið þessum götum fyrir bílaumferð árið um kring. Ástæður undirskriftanna voru áhyggjur þessara aðila af þróun mála í miðborginni og afkomumöguleikum verslunar við þessar rótgrónu verslunargötur. Undirritaður lagði síðar fram tillögu á borgarstjórnarfundinum um að borgarmeirihlutinn tæki upp nánara og víðtækara samráð við alla aðila sem hagsmuna eiga að gæta, svo sem hagsmunaaðila fatlaðs fólks, eldri borgara og rekstraraðila. Umræður urðu mjög snarpar og stóðu lengi yfir.

Ljóst er að ýmsar breytingar hafa orðið í samfélaginu sem áhrif hafa á þörf íbúa fyrir þjónustu í miðborginni. Bílastæðavandinn er einn fælingarmátturinn og nú hin síðustu ár ört hækkandi leiguverð sem ræðst af tvennu, framboðsskorti á húsnæði í miðborginni og hækkandi fasteignagjöldum. Má rekja þá hækkun m.a. til breytinga á fasteignamati sem fer síðan beint út í leiguverðið. Þessar tvær meginástæður gera m.a. verslunarrekstur við göturnar mun erfiðari. Dágóður hópur rekstraraðila hefur ákveðið að flytja sig annað eða hreinlega hætta rekstri. Þegar er hluti þeirra fluttur og eftir standa auð rými. Þessir aðilar nefna aðallega flótta viðskiptavina vegna erfiðrar aðkomu að verslunargötunum og hækkandi bílastæðagjalda. Einnig nefna margir að sumarlokun fyrir bílaumferð um göturnar dragi úr komu viðskiptavina, en auki kannski flæði ferðamanna sem aftur á móti versla lítið. Túristaverslunum sem þjóna ferðamönnum hefur fjölgað verulega, en þjóna ekki borgarbúum nema að mjög takmörkuðu leyti.

Engar haldgóðar rannsóknir né kannanir hafa verið gerðar til að átta sig á fækkun borgarbúa á þessum götum, sem hefur bein áhrif á viðskiptin. Það er ein könnun sem gerð var af Maskínu sl. sumar sem borgarmeirihlutinn hengir sig hvað mest í, en aðeins 768 Reykvíkingar svöruðu henni. Sú könnun gefur í raun ranga mynd af viðhorfi borgarbúa almennt, þar sem spurt var hvort íbúar væru sáttir við sumarlokun verslunargatna í miðborginni. Ekki var svarendum gert ljóst að til stóð að loka götunum árið um kring. Ef svo hefði verið má leiða getum að því að svörunin hefði farið á annan veg. Þó er hægt að lesa úr þessari könnun, þegar vel er gáð, að því fjær sem íbúar búa frá miðborginni því andvígari eru þeir sumarlokun, hvað þá árið um kring.

Að hagræða staðreyndum með þessum hætti þýðir eingöngu að meirihlutinn vinnur aðeins fyrir þann hluta borgarbúa sem búa nálægt miðjunni. Hinir geta átt sig, en eitthvað á þá leið komst einn borgarfulltrúi meirihlutans að orði á fyrrnefndum borgarstjórnarfundi: „Þeir koma hvort sem er aldrei niður í bæ.“ Hvers vegna skyldi það nú vera? Það er jafnframt á áætlun meirihlutans að loka svo kirfilega fyrir umræddar götur að fatlaðir og aldraðir einstaklingar komist illmögulega í göturnar. Það má nefnilega enginn bíll aka um þær eftir að lokað verður.

Skoðum nokkrar staðreyndir: 90% rekstraraðila eru á móti heilsárslokun. Í skoðanakönnun Gallup 1. febrúar sl. er borgarstjórnarmeirihluti Reykjavíkur neðstur á lista þeirra stofnana sem um var spurt með aðeins 16% traust af hálfu þjóðarinnar. Núverandi borgarmeirihluti kveðst vera að vinna samkvæmt vilja kjósenda en það er hins vegar ekki hafið yfir allan vafa að svo sé. Fyrir Reykvíkinga væri lítið að sækja ef þessara verslana nyti ekki við við göturnar. Ef áform meirihlutans verða að veruleika þá er það klárlega mikill skaði fyrir eitthvert rótgrónasta og vinsælasta svæði borgarinnar okkar. Finna þarf leiðir sem geta sætt alla aðila. Ljóst er að þörf er á breytingum, til að gæða þessar götur meira lífi fyrir borgarbúa, en málin verða ekki leyst með gerræðislegri aðferðafræði meirihlutans og skella bara í lás fyrir allri bílaumferð. Við búum á Íslandi þar sem válynd veður geisa.

Höfundur er varaborgarfulltrúi Flokks fólksins. thor.elis.palsson@reykjavik.is