Spænskur draumur Það er ekki hægt að standast svona freistingar enda engin ástæða til.
Spænskur draumur Það er ekki hægt að standast svona freistingar enda engin ástæða til. — Ljósmynd/María Gomez
Það eru örugglega margir sem kannast við að hafa smakkað churros á Spáni en það er varla hægt að fá neitt spænskra en churros og hráskinku. Hér fáum við uppskrift beint frá Maríu Gomez á Paz.

Það eru örugglega margir sem kannast við að hafa smakkað churros á Spáni en það er varla hægt að fá neitt spænskra en churros og hráskinku. Hér fáum við uppskrift beint frá Maríu Gomez á Paz.is sem þekkir spænska matargerð og hefðir sjálfsagt betur en flestir. María segir að churros sé oftast borðað sem morgunmatur á sparidögum og það sé fátt sem toppi gott churros.

Þóra Sigurðardóttir

thora@mbl.is

„Við fjölskyldan mín á Spáni fáum okkur alltaf churros áður en við förum á laugardagsmarkaðinn í Guadix. Hefðbundið ekta spænskt churros er yfirleitt gert eingöngu úr vatni, hveiti, salti og lyftidufti. Hins vegar má finna alls kyns útgáfur í dag af churros eins og fyllt churros með vanillukremi, Oreochurros, súkkulaðihúðað churros og svona mætti lengi telja,“ segir María.

„Ég hins vegar ákvað að gera churrosið frekar hefðbundið nema ég bætti í deigið eggi, smjöri og vanilludropum. Við það verður það enn gómsætara og bragðmeira en hið hefðbundna churros. Svo auðvitað er það algjör skylda að dýfa churrosinu í súkkulaði því annars væri það ekki alvöru churros-máltíð skal ég segja ykkur. Þessu churros er síðan betra að velta aðeins upp úr sykri blönduðum við örlítinn kanil. Þó að churros sé djúpsteikt þurfið þið ekki að hræðast því hér nota ég bara djúpa pönnu og olíu svo það er meira eins og maður sé að steikja á pönnu en djúpsteikja. Hér þarf ekki djúpsteikingarpott eða sérstök áhöld.“

Churros con chocolate

250 ml vatn

55 g ósaltað smjör

1 msk. sykur

1/4 tsk. salt

140 g hveiti

1 stórt egg

½ tsk. vanilluextract eða vanilludropar

1 lítri grænmetisolía

Sykur til að velta upp úr:

½ bolli sykur

3/4 msk. kanill

Aðferð:

Byrjið á að hræra saman sykurinn og kanilinn sem á að fara utan á og setja á matardisk.

Nú byrjum við á sjálfu churrosinu.

Vatn, smjör og sykur er sett saman í pott og látið byrja að sjóða, lækkið þá hitann niður í miðlungshita.

Bætið svo hveitinu út í pottinn smátt og smátt og hrærið vel í á meðan, mjög svipað og þegar maður gerir vatnsdeigsbollur.

Færið nú deigið yfir í skál og látið kólna í eins og 5-10 mínútur við opinn glugga.

Bætið svo vanillu og eggi við í skálina og byrjið strax að þeyta með handþeytara, þar til deigið er orðið silkimjúkt og vel þjappað saman í kúlu.

Setjið deigið í sprautupoka með frekar stórum stjörnustút.

Mér finnst best að sprauta svo deigi á smjörpappír í lengjur og klippa í kring um hverja lengju svo hver og ein fái sinn pappír.

Hitið nú olíuna á djúpri pönnu og setjið smá deig út á til að vita hvort hún sé heit. Þegar hún er orðin heit lækkið þá ögn undir henni, ekki mikið bara aðeins.

Setjið nú eins og 3-4 lengjur á smjörpappa út í olíuna og takið pappan með töng strax af, mjög þægilegt að gera þetta svona svo slettist ekki á mann olía.

Þið getið farið inn á instagrammið mitt og séð hvernig ég geri þetta þar.

Steikið þar til lengjurnar eru orðnar vel gullinbrúnar og passið að hafa þær nógu lengi svo þær verði ekki hráir innan í.

Setjið þá svo á disk með eldhúspappír til að taka af alla aukaolíu.

Að lokum er þeim svo velt upp úr sykurblöndunni.

Súkkulaðið með churrosinu

100 g 70% súkkulaði

1 dl rjómi

klípa af salti

Aðferð:

Setjið allt saman í pott og hrærið stöðugt í meðan súkkulaðið er að bráðna.

Berið svo fram heitt með churrosinu.