Íslendingar hafa mikinn áhuga á skipum. Þegar stóru skemmtiferðaskipin koma í Sundahöfn fyllist hafnarsvæðið af áhugasömum áhorfendum. Morgunblaðið birtir árlega lista yfir skipakomur svo fólk viti hvaða daga skipin koma. Upplagt er að geyma listann, t.

Íslendingar hafa mikinn áhuga á skipum. Þegar stóru skemmtiferðaskipin koma í Sundahöfn fyllist hafnarsvæðið af áhugasömum áhorfendum. Morgunblaðið birtir árlega lista yfir skipakomur svo fólk viti hvaða daga skipin koma. Upplagt er að geyma listann, t.d. á ísskápnum. Breytingar geta orðið af ýmsum ástæðum og þá er upplagt að fylgjast með uppfærðum lista á www. faxafloahafnir.is. Þar er komutími líka skráður.

Fyrsta skipið kemur til Akureyrar í dag og þar má fylgjast með skipunum á www.port.is.