Veisla hjá lóunni Umgangast þarf búsvæði fugla af virðingu.
Veisla hjá lóunni Umgangast þarf búsvæði fugla af virðingu. — Morgunblaðið/Ómar
Um þriðjungur heimsstofns heiðlóu verpur hér á landi og um 27% heimsstofns spóa. Hvað varðar stelk þá verpa hér um 12% heimsstofnsins, 10% lóuþræls og 7% af heimsstofni jaðrakans.

Um þriðjungur heimsstofns heiðlóu verpur hér á landi og um 27% heimsstofns spóa. Hvað varðar stelk þá verpa hér um 12% heimsstofnsins, 10% lóuþræls og 7% af heimsstofni jaðrakans.

Þetta kemur fram í nýrri vísindgrein í alþjóðlega vísindaritinu Wader Study sem dr. Lilja Jóhannesdóttir, starfsmaður Náttúrustofu Suðausturlands, vann ásamt félögum sínum við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurlandi og við háskólana í Austur-Anglíu í Bretlandi og í Aveiro í Portúgal. Greinin fjallar um íslenska mófugla: stöðu, ógnir og áskoranir við verndun.

Fjallað er um niðurstöðurnar á heimasíðu Náttúrustofu Suðausturlands og segir þar m.a.: „Greinin er yfirlitsgrein um stöðu algengustu vaðfuglategunda sem verpa í úthaga á Íslandi. Farið er yfir stofnstærðir, lýðfræðilega þekkingu (þá litlu sem til er), stöðu verndar og helstu ógnir sem stafa að þessum tegundum. Hér á Íslandi höfum við ofurstóra vaðfuglastofna (samanborið við nágrannalönd okkar sem mörg hafa gengið alltof harkalega á búsvæði þeirra) sem við höfum skuldbundið okkur til að vernda með þátttöku okkar í fjölda alþjóðlegra samninga.

Tillit sé tekið til fuglanna

Mikilvægi Íslands í því samhengi er gríðarmikið, en til dæmis má nefna 34% heimsstofns heiðlóu og 27% spóans verpa hér á landi, og því mikilvægt að við umgöngumst þessar tegundir og búsvæði þeirra af virðingu. Ein helsta ógnin sem þessir fuglar búa við á Íslandi er búsvæðatap og loftslagsbreytingar. Það er því nauðsynlegt að við skipulag framkvæmda sé fylgt eftir ákvæðum alþjóðasamninga, tekið tillit til þarfa fugla og að við Íslendingar gerum allt sem í okkar valdi stendur til að sporna við loftslagsbreytingum.“ aij@mbl.is