Þráinn Orri Jónsson
Þráinn Orri Jónsson
Handknattleiksmaðurinn Þráinn Orri Jónsson verður ekki áfram í herbúðum norska liðsins Elverum að keppnistímabilinu loknu. Þetta staðfesti Þráinn við Morgunblaðið í gær. Hann sagði enn óvíst hvort hann héldi áfram að leika úti í Evrópu eða flytti heim.

Handknattleiksmaðurinn Þráinn Orri Jónsson verður ekki áfram í herbúðum norska liðsins Elverum að keppnistímabilinu loknu. Þetta staðfesti Þráinn við Morgunblaðið í gær. Hann sagði enn óvíst hvort hann héldi áfram að leika úti í Evrópu eða flytti heim. Þráinn Orri lék með Gróttu áður en hann gekk til liðs við Elverum fyrir tveimur árum. „Ef ekkert gott býðst þá kem ég líklegast heim,“ sagði Þráinn Orri sem reiknar með að gefa sér tíma út þennan mánuð áður en hann ákveður næsta skref.

Elverum hafnaði í öðru sæti norsku úrvalsdeildarinnar á leiktíðinni. Liðið er komið í úrslit í úrslitakeppninni og mætir Noregsmeisturum Arendal fyrsta sinni á útivelli á sunnudaginn. Vinna þarf þrjá leiki til þess að vinna úrslitakeppnina. Liðið sem vinnur úrslitakeppnina verður ekki norskur meistari heldur liðið sem vinnur deildarkeppninni, öfugt við það sem er hér á landi. iben@mbl.is