Erlendur karlmaður var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir síðustu helgi eftir að í farangri hans fannst mikið magn af sígarettum eða 32.800 stykki. Lögreglan á Suðurnesjum tók skýrslu af manninum og kvaðst hann þá hafa ætlað að verða sér úti um peninga með því að selja sígaretturnar hér á landi. Honum var sleppt að lokinni skýrslutöku.
Þá hafa komið á borð lögreglu á síðustu dögum nokkur fíkniefnamál, einnig frá flugstöðinni. Tollgæslan stöðvaði mann með neysluskammta af LSD og annan sem var með kannabisolíu í fórum sínum.
Síðastliðinn föstudag handtók svo lögregla karlmann sem var að koma frá London með umtalsvert magn af verkjalyfinu oxycontin og svefnlyfjum innan klæða.
Hann var færður á lögreglustöð til skýrslutöku.