Hæstiréttur Íslands hefur veitt Barnaverndarstofu leyfi til þess að áfrýja dómi í máli Freyju Haraldsdóttur gegn stofnuninni til Hæstaréttar, en Landsréttur kvað upp þann dóm fyrir skömmu að Barnaverndarstofa hefði mismunað Freyju vegna fötlunar og...

Hæstiréttur Íslands hefur veitt Barnaverndarstofu leyfi til þess að áfrýja dómi í máli Freyju Haraldsdóttur gegn stofnuninni til Hæstaréttar, en Landsréttur kvað upp þann dóm fyrir skömmu að Barnaverndarstofa hefði mismunað Freyju vegna fötlunar og sneri þar með við dómi sem áður hafði fallið í héraði.

Freyja hefur farið fram á að úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála frá 2016 verði felldur úr gildi, en með þeim úrskurði var staðfest sú ákvörðun Barnaverndarstofu að hafna umsókn Freyju um leyfi til þess að taka barn í varanlegt fóstur.

Fram kemur í niðurstöðu Hæstaréttar um málskotsbeiðnina að Barnaverndarstofa hafi byggt beiðni sína um áfrýjunarleyfi á því að málið hafi verulegt almennt gildi um hvernig stjórnvöldum beri að beita jafnræðisreglunni og rannsóknarreglunni og að niðurstaða málsins varði mikilvæga hagsmuni barna sem þurfi að setja í varanlegt fóstur.

Þá hafi dómur Landsréttar verið bersýnilega rangur, þar sem litið hafi verið framhjá meginmarkmiðum barnaverndarlaga um að börnum skuli tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.

Freyja sagði á facebooksíðu sinni í gær að áfrýjunarleyfi Barnaverndarstofu væri henni „mikil vonbrigði“, enda hefði dómur Landsréttar verið bæði „skýr og afdráttarlaus“.

„Áfrýjunarbeiðnin er yfir höfuð athyglisverð og enn önnur afhjúpun á því hvað kerfiskarlar (af öllum kynjum) geta verið hræddir við fatlaða konu og hve mikil ógn fatlaður kvenlíkami er fyrir hugmyndir stjórnvalda og samfélagsins um móðurhlutverkið,“ skrifaði Freyja.