— Morgunblaðið/Eggert
Lindaskóli sigraði í Skólahreysti í gærkvöldi með 56 stig. Liðið skipuðu Selma Bjarkadóttir, Alexander Broddi Sigvaldason, Hilmir Hugason og Sara Bjarkadóttir.
Lindaskóli sigraði í Skólahreysti í gærkvöldi með 56 stig. Liðið skipuðu Selma Bjarkadóttir, Alexander Broddi Sigvaldason, Hilmir Hugason og Sara Bjarkadóttir. Í öðru sæti varð Holtaskóli með 55 stig og í því þriðja Heiðarskóli með 53 stig en Heiðarskóli jafnaði einnig elsta Íslandsmet Skólahreysti þegar Klara Lind Þórarinsdóttir og Eyþór Jónsson kláruðu hraðabrautina á tveimur mínútum og þremur sekúndum.