Vorboðinn ljúfi Þessi blómadragt er ákaflega sumarleg og falleg. Hún fæst í Selected.
Vorboðinn ljúfi Þessi blómadragt er ákaflega sumarleg og falleg. Hún fæst í Selected.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sumardagurinn fyrsti rann upp bjartur og fagur og síðan þá hefur nokkrum sinnum verið hægt að fara berfættur í skóm út úr húsi. Í framhaldinu bárust fréttir af því að aprílmánuður hefði verið sá hlýjasti í langan tíma.

Sumardagurinn fyrsti rann upp bjartur og fagur og síðan þá hefur nokkrum sinnum verið hægt að fara berfættur í skóm út úr húsi. Í framhaldinu bárust fréttir af því að aprílmánuður hefði verið sá hlýjasti í langan tíma. Þetta ýtti svo sannarlega undir bjartsýni um að sumarið yrði ein samfelld sólarlest og hægt yrði að spranga um í blómstrandi og léttum sumarfötum án þess að sýna mikla áhættuhegðun.

Marta María Jónasdóttir

mm@mbl.is

Segjum sem svo að sumarið verði milt og dásamlegt; þá er ekki úr vegi að sporta sig svolítið í fallegum sumarfötum, setja á sig örlítið brúnkukrem og örlítið brons í kinnarnar. Nú ef sumarið verður eins og í fyrra má alltaf fari í þunn ullarföt undir blómakjólana enda ætla landsins spariskór ekkert að láta veðrið stoppa sig.

Sumarið 2019 verður sumar blómamunstranna. Þá er ekki bara verið að tala um um létta síða sumarkjóla heldur munstraðar blómadragtir. Það sem er sniðugt við dragtir með blómamunstri er að þær hafa í raun þríþætt notagildi. Hægt er að nota buxurnar og jakkann saman en svo má nota buxurnar einar og sér við létta toppa og svo má alltaf fara í jakkann við gallabuxur eða hvítar gallabuxur. Við þennan pakka er fallegt að vera í ljósum lakkskóm og sleppa sokkunum. Ef ristarnar eru fölar og litlausar eftir veturinn má úða smá brúnku frá Marc Inbane yfir. Bara svona rétt til að fæturnir líti ekki út fyrir að tilheyra annarri manneskju. Sumir flaska nefnilega á því að mála andlitið í öllum heimsins litum en gleyma útlimunum. Þá verðum við svolítið eins og við höfum verið send á dúkkuspítalann og vitlausir handleggir eða fótleggir verið límdir á. Hindar vönduðu og góðu fósturlandsins freyjur ætla ekki að láta hanka sig á þessu.