Ég er ekki stuðningsmaður Liverpool og lít reyndar á liðið sem mína erkióvini en ég gat ekki annað en hrifist af frammistöðu þess í leiknum gegn Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á Anfield í fyrrakvöld.
Ég er ekki stuðningsmaður Liverpool og lít reyndar á liðið sem mína erkióvini en ég gat ekki annað en hrifist af frammistöðu þess í leiknum gegn Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á Anfield í fyrrakvöld.

Liverpool pakkaði Spánarmeisturunum saman á mögnuðu Evrópukvöldi á Anfield og ég held svei mér þá að Messi og samherjar hans í Katalóníuliðinu hafi vanmetið andrúmsloftið á þessum sögufræga velli.

Ég hef gríðarlega mikið álit á Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool, klókindum hans og útgeislun og hversu tilbúnir leikmenn eru til að spila fyrir Þjóðverjann og félag sitt. Það gerði útslagið í þessum leik.

Ég heyrði í gömlum leikmönnum Liverpool spjalla saman á Liverpool-sjónvarpsstöðinni eftir leikinn og þeir höfðu á orði að leikmenn Barcelona hefðu mætt inn í búningsklefann fyrir leikinn með hangandi haus þar sem værukærðin skein út úr andlitum þeirra. Þeir töldu formsatriði að gera út um einvígið með 3:0-forystu í farteskinu.

Liverpool mætir Tottenham í úrslitaleiknum á Wanda Metropolitano-vellinum í Madrid 1. júní en í ótrúlega dramatískum leik gegn Ajax í Amsterdam í gærkvöld tryggði Tottenham sér farseðilinn í úrslitaleikinn með sigurmarki á síðustu sekúndu leiksins.

Ég ætla að spá Liverpool sigri og hver veit nema 29. eyðimerkurgöngu Liverpool í leit að Englandsmeistaratitlinum ljúki á sunnudaginn! Það er ekkert ómögulegt í þessari fallegustu og skemmtilegustu íþrótt í heimi!