Fjaðrir og dúskar Margrét í Berlín á pínulitlum bar þar sem fáir áhorfendur komust að. Hún segir þetta eina bestu sýningu sína.
Fjaðrir og dúskar Margrét í Berlín á pínulitlum bar þar sem fáir áhorfendur komust að. Hún segir þetta eina bestu sýningu sína. — Ljósmynd/Daniel Paikov
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Burlesque-listform gengur út á sýningar sem innihalda stutt atriði þar sem grín og ádeila blandast kynþokka. Kabarettkonan Margrét Erla Maack leggur upp í hringferð um Ísland í sumar með erlent og íslenskt sýningarfólk í farteskinu.

Burlesque-listform gengur út á sýningar sem innihalda stutt atriði þar sem grín og ádeila blandast kynþokka. Kabarettkonan Margrét Erla Maack leggur upp í hringferð um Ísland í sumar með erlent og íslenskt sýningarfólk í farteskinu. Það verður nóg af holdi og hasar í þeysireiðinni Búkalú um lönd og lendar.

Kristín Heiða Kristinsdóttir

khk@mbl.is

Að sýna þar sem enginn veit hver maður er eða við hverju má búast er alveg ótrúlega þægilegt. Við Ellie vorum með nokkur atriði í töskunni og komum fram með gestaatriði sem voru hluti af sýningum annarra. Við byrjuðum í Köben þar sem við sýndum í eldgömlu bíóhúsi í Kristjaníu og þurftum að passa að geyma ekki búningana á gólfinu, því þá hefðu mýsnar borðað þá. Þaðan fórum við til Berlínar og komum fram á pínulitlum skítugum bar, sem var fullkomið. Síðan fórum við til Tallinn í Eistlandi þar sem við sýndum í litlum kabarettklúbbi í gömlu vændishúsi, en í búningsherbergi okkar var bæði sundlaug og gufubað sem við höfðum til afnota. Við enduðum í London á tveimur stórum sýningum þar sem 400 manns voru í áhorfendasalnum. Þetta var heljarinnar ævintýr og uppselt á allar sýningarnar, enda mikil eftirspurn eftir svona „fullorðins“-sýningum,“ segir Margrét Erla Maack, kabarettkona og burlesque-drottning, en hún er nýkomin heim úr Evrópuferðalagi sem hún fór í ásamt vinkonu sinni Ellie Steingraeber, sirkus- og húlladrottningu frá New York.

Alls konar líkamar og fjör

Margrét er öflug í að bjóða fólki upp á fullorðinssýningar hér heima, hún er móðir Reykjavíkurkabaretts sem hefur sýnt reglulega og nú ætlar hún að leggja upp í mikla þeysireið í sumar hringinn um Ísland, undir heitinu Búkalú um lönd og lendar. Og auðvitað verður fyrrnefnd Ellie með í för.

„Ég hef fengið til liðs við mig rúmlega 30 skemmtikrafta, erlenda og íslenska, flestir koma úr burlesque-heiminum en þarna verða líka drag- og sirkuslistamenn og grínistar. Mörg þeirra sem koma að utan hafa leyft mér að vera með í þeirra sýningum, og nú er komið að mér að leyfa þeim að koma hingað og sýna með mér. Þetta eru nánir vinir mínir og ég er svo heppin að allir vilja koma til Íslands, af því það þykir flott, svo þarna eru stórar stjörnur úr bransanum,“ segir Margrét sem er m.a. mjög stolt af því að geta boðið Frónbúum að sjá Wilfredo í sýningum sumarsins, en hann er Breti sem býr í New York og hefur komið oft til Íslands og á sér stóran aðdáendahóp hér.

„Hann kemur fram sem suðrænn og seiðandi trúbador og er með skemmtilega stúdíu á karlmennsku. Ég er líka stolt af því að hafa loksins tekist að fá hjónin Evil Hate Monkey og Boo Boo Darlin' til landsins, en þau eru stórkostlegir skemmtikraftar og enn skemmtilegri baksviðs, sem mér finnst skipta miklu máli. Íslendingar geta líka hlakkað til að eiga kost á því að fara á námskeið í því að búa til burlesque-atriði hjá systur minni og samverkakonu, Jezebel Express, en hún er yfirkennari í New York School of Burlesque. Margir af flottustu kabarettlistamönnum heims verða með í þessari þeysireið og það eru fleiri stelpur en strákar. En það er gott að vega upp á móti kynjahallanum í skemmtanabransanum, því það eru fleiri hlutverk fyrir karla en konur í leikhúsum, fleiri karlar en konur eru í vinsælum hljómsveitum og fleiri karlar en konur eru uppistandarar. En ég tek fram að það eru margir sætir karlmenn í sýningunum hjá okkur í sumar, alls konar líkamar og afar fjölbreytt samansafn af skemmtikröftum,“ segir Margrét og bætir við að þau sýni aldrei öll í einu, heldur skipti fólki út.

„Útlendingunum finnist spennandi að koma fram í alls konar ólíkum rýmum á litla Íslandi þar sem takast þarf á við það ögrandi verkefni að laga sig að síbjörtum sumardögum. Þegar dagsbirtan lekur inn þurfa sumir að breyta sínum atriðum, sem eru hönnuð fyrir myrkur,“ segir Margrét og bætir við að væntanleg sumarferð litist af dásamlegum íslenskum reddingum.

„Við gistum víða hjá frænkum, vinum og nágrönnum þeirra. Útlendingunum finnst það ævintýralega gaman, en svona virkar samfélag þar sem allir eru vinir og fólk treystir hvað öðru.“

Íslendingar eru kröfuharðir

Þegar Margrét er spurð hverju fólk megi eiga von á í þessari farandsýningu sumarsins segir hún að gott veganesti fyrir gesti sé að mæta með opinn huga.

„Þetta er fullorðins grín og glens og atriðin eru mjög ólík svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. En Íslendingar eru mjög kröfuharðir áhorfendur, þeir eru góðu vanir, enda er allt sem kemur frá Íslandi á háum standard, hvort sem það er tónlist, uppistand, drag eða þetta sem við erum að gera. Það kemur öllum á óvart sem hingað koma frá öðrum löndum hversu ung burlesque- senan er hér á landi. Hún er yngri en tíu ára og fyrir vikið ofboðslega lifandi. Allir eru svo spenntir fyrir einhverju nýju og spennandi og öll burlesque-námskeið sem við höfum haldið hafa fyllst af áhugasömu fólki. Fólk finnur sig greinilega í dýrðarljóma liðinnar tíðar, sem er ofboðslega fallegt.“

Þegar Margrét er spurð hvað það geri fyrir hana að stíga á svið og sýna burlesque-atriði segir hún að það innihaldi allt sem henni finnst skemmtilegt við að vinna í leikhúsi en ekkert af því sem henni finnst leiðinlegt.

„Semsagt fullkomið! Hver og einn vinnur í sínu atriði og býr til sinn búning. Klukkutíma fyrir sýningu er svo öllu púslað saman, sýnt, klappað, og búið. Ekkert langt og erfitt æfingaferli, maður er bara einn með sjálfum sér í sínu atriði. Félagsskapurinn er líka stórkostlegur í þessari senu, sem mér finnst afar áríðandi. Mér finnst líka æðislegt að geta ferðast svona mikið vegna vinnu minnar. Margir halda að þetta séu allt prímadonnur, en það kemur á óvart að þannig er það alls ekki. Þetta er svo lítill heimur að ef þú ert leiðinlegur þá fréttist það snemma og þú færð ekkert að gera. Það er ekkert pláss fyrir þá dívustæla.“

Til að sjá hvar og hvenær Búkalú verður um lönd og lendar í sumar er hægt að fara inn á vefsíðuna: www.bukalu.net.