Tónleikar Svenni og Stefanía heiðra þau Bradley Cooper og Lady Gaga á A Star Is Born-tónleikum annað kvöld.
Tónleikar Svenni og Stefanía heiðra þau Bradley Cooper og Lady Gaga á A Star Is Born-tónleikum annað kvöld.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Kvikmyndin A Star is Born sló í gegn í kvikmyndahúsum í fyrra og er það ekki síst tónlistinni í kvikmyndinni að þakka hversu vel hún fangaði hug og hjörtu áhorfenda. Tónlistarmaðurinn Svenni Þór fékk þá hugmynd að setja upp tónleika með tónlistinni úr kvikmyndinni og munu þeir fara fram annað kvöld.

„Þegar ég fór á þessa mynd í bíó með konunni minni varð ég algerlega hugfanginn af tónlistinni í myndinni og sagði við hana á leiðinni út að mig langaði ótrúlega að gera tónleika með þessari tónlist,“ sagði Svenni Þór í samtali við Sigga Gunnars á K100. „Í kjölfarið á því heyri ég í Hauki á Græna hattinum á Akureyri og spurði hvort það væri eitthvað laust fyrir svona tónleika en því miður var allt uppbókað. Hann sagðist þó ætla að setja mig á lista ef eitthvað myndi losna.“ Það gerðist og fékk Svenni símtal frá Hauki um mánuði síðar. „Hann sagðist eiga laust pláss eftir þrjár vikur og spurði hvort ég væri klár með tónleikana. Ég laug aðeins og sagði bara já, þrátt fyrir að ekkert væri klárt,“ segir Svenni hlæjandi en það kom ekki að sök því allir þeir sem hann vildi fá með í verkefnið voru lausir og tilbúnir til þess að taka þátt í því, þeirra á meðal söngkonan Stefanía Svavarsdóttir.

Átta klukkutíma ferð í óveðri með ungbarn

Það var ákveðið að halda norður í land með allt stóðið en svo óheppilega vildi til að óveður skall á, á tónleikadeginum. „Ég var nýbúin að eignast barn og var búin að ákveða að taka mér frí frá því að koma fram nema að ég fengi tilboð sem ég gæti ekki hafnað og þá hringdi Svenni með þetta spennandi verkefni,“ segir Stefanía Svavars sem fetar í fótsport Lady Gaga á tónleikunum. „Það tók mig átta tíma þennan dag að komast til Akureyrar. Ég tók þriggja mánaða gamalt barnið mitt með og honum fannst það vægast ekki skemmtilegt,“ segir Stefanía hlæjandi og bætir við að þetta sé hennar fyrsta barn og að þetta hafi verið mikilvæg lexía fyrir hana sem móður. „Það var tvísýnt um stund hvort við þyrftum að aflýsa tónleikunum en sem betur fer gerðist það ekki og við komum fram fyrir fullum kofa á Akureyri,“ bætir hún við.

Nú stendur svo til að halda tónleikana aftur í miðborg Reykjavíkur en þau munu koma fram í Gamla bíói annað kvöld klukkan 22. Á efnisskrá tónleikanna eru öll lögin úr myndinni og koma þau tvö fram ásamt hljómsveit sem skipuð er þeim Benedikt Brynjólfssyni, Inga Birni Ingasyni, Pétri Valgarði Péturssyni og Helga Reyni Jónssyni. Svo ætla þau að freista þess að halda aftur norður í land í júní og vonandi fara veðurguðirnir mildari höndum um þau þá.