— AFP
Harry Bretaprins og eiginkona hans, Meghan, sýndu nýfæddan son sinn opinberlega í fyrsta skipti í Windsor-kastala í gær, tveimur dögum eftir að hann fæddist. „Hann er mjög ljúfur í lund, mjög rólegur.

Harry Bretaprins og eiginkona hans, Meghan, sýndu nýfæddan son sinn opinberlega í fyrsta skipti í Windsor-kastala í gær, tveimur dögum eftir að hann fæddist.

„Hann er mjög ljúfur í lund, mjög rólegur. Hann hefur verið draumur,“ sagði Meghan og brosti með sofandi soninn í fanginu. „Ég veit ekki frá hverjum hann fær það,“ sagði þá Harry hlæjandi.

Seinna um daginn fóru þau til Elísabetar II Bretadrottningar, langömmu barnsins, til að sýna henni nýja erfingjann.

Hjónin greindu ennfremur frá því að sonurinn fengi nafnið Archie Harrison Mountbatten-Windsor. Margir Bretar höfðu veðjað um hvaða nafn hann fengi og flestir töldu að hann yrði skírður Alexander eða Spencer.

Flestir fjölmiðlar í Bretlandi höfðu sagt að barnið hefði fæðst á heimili Harry og Meghan við Frogmore Cottage, sem er á landareign Windsor-kastala, en blaðið Daily Mail sagði að Meghan hefði verið flutt með leynd á sjúkrahús fyrir fæðinguna.