Hjólað í vinnuna 2019 Ráðherrar og borgarstjóri brugðu sér á bak hjólhestunum í tilefni setningar átaksins.
Hjólað í vinnuna 2019 Ráðherrar og borgarstjóri brugðu sér á bak hjólhestunum í tilefni setningar átaksins. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Átakið Hjólað í vinnuna 2019 var sett í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í gærmorgun. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir Hjólað í vinnuna. Þetta var í 17. skiptið sem efnt var til átaksins.

Átakið Hjólað í vinnuna 2019 var sett í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í gærmorgun. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir Hjólað í vinnuna. Þetta var í 17. skiptið sem efnt var til átaksins.

Hjólreiðafólki var boðið að renna við í Laugardalnum og þiggja bakkelsi. Hvatningarávörp fluttu Hafsteinn Pálsson, formaður almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.

Hjólað í vinnuna 2019 stendur dagana 8. maí til 28. maí.

„Verkefnið höfðar til starfsfólks á vinnustöðum landsins og hefur þátttakan margfaldast á þeim 16 árum sem liðin eru frá því að verkefnið fór af stað. Undanfarinn áratug hefur orðið gríðarleg vakning á hjólreiðum sem heilsusamlegum samgönguvalkosti. Ætla má að margir þátttakendur hafi tekið hjólreiðar upp sem lífstíl í framhaldi af þátttöku sinni í verkefninu. ÍSÍ er stolt af því að hafa stuðlað að bættri hjólamenningu á Íslandi og orðið til þess að vinnustaðir og sveitarfélög hafi bætt til muna aðstöðu fyrir hjólandi fólk,“ segir í tilkynningu. gudni@mbl.is