Landspítalinn Stjórnvöld efli opinberu heilbrigðisþjónustuna.
Landspítalinn Stjórnvöld efli opinberu heilbrigðisþjónustuna. — Morgunblaðið/Hari
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Varað er við aukinni einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu í ályktun aðalfundar BSRB sem haldinn var í gær. Þar er einkavæðing sögð í algerri andstöðu við vilja þorra þjóðarinnar. Einkarekstur dragi ekki úr kostnaði hins opinbera við heilbrigðisþjónustuna og torveldi stjórnvöldum að forgangsraða og skipuleggja í þágu almannahagsmuna.

Varað er við aukinni einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu í ályktun aðalfundar BSRB sem haldinn var í gær. Þar er einkavæðing sögð í algerri andstöðu við vilja þorra þjóðarinnar. Einkarekstur dragi ekki úr kostnaði hins opinbera við heilbrigðisþjónustuna og torveldi stjórnvöldum að forgangsraða og skipuleggja í þágu almannahagsmuna.

„Við megum ekki láta skammtímahagsmuni ráða þegar kemur að því að byggja upp heilbrigðiskerfi sem á að þjóna öllum landsmönnum,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB í tilkynningu. „Það eru beinir hagsmunir almennings að auka ekki við þá einkavæðingu sem þegar hefur verið ráðist í heldur styrkja opinbera heilbrigðiskerfið svo það geti veitt fyrsta flokks þjónustu án langra biðlista.“

Biðlistar unnir niður

Í ályktun aðalfundarins eru stjórnvöld hvött til að byggja upp opinbera þjónustu á Landspítalanum, heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og heilsugæslunni. Einnig að biðlistar eftir aðgerðum verði unnir niður. Þá sé nauðsynlegt að gera úrbætur á starfsumhverfi starfsfólks í heilbrigðiskerfinu svo stofnanir þess verði aðlaðandi vinnustaðir fyrir vel menntað og öflugt starfsfólk.

Öll aðildarfélög BSRB eru með lausa kjarasamninga og lagði aðalfundur bandalagsins áherslu á að í þeim kjarasamningsviðræðum sem nú eru í gangi verði samið um bætt starfsumhverfi opinberra starfsmanna. Í ályktun segir að bregðast verði hratt við aukinni tíðni veikinda vegna langvarandi streitu og kulnunar. Stytting vinnuvikunnar sé leið til þess.

Mikið álag hefur slæm áhrif

„Niðurstöður tilraunaverkefna sýna fram á ótvíræðan ávinning bæði fyrir starfsfólk og vinnustaði. Aðalfundur BSRB telur ekki eftir neinu að bíða og að stytta eigi vinnuvikuna með skýrum hætti í kjarasamningum við ríki og sveitarfélög. Sérstaklega er brýnt að stytta vinnuviku vaktavinnufólks enda ljóst að álagið sem fylgir vaktavinnu hefur afar slæm áhrif á heilsu starfsfólksins,“ segir í ályktuninni.