D-A-D-liðar hafa engu gleymt.
D-A-D-liðar hafa engu gleymt.
Rokk Hin fornfræga danska rokkhljómsveit D-A-D sendir í lok mánaðarins frá sér sína fyrstu breiðskífu í heil átta ár, A Prayer For The Loud.
Rokk Hin fornfræga danska rokkhljómsveit D-A-D sendir í lok mánaðarins frá sér sína fyrstu breiðskífu í heil átta ár, A Prayer For The Loud. Rokkvefurinn Blabbermouth hefur eftir Stig Pedersen bassaleikara að á plötunni hafi D-A-D dottið niður á sjálfan kjarnann eftir að hafa teygt sig í ýmsar áttir gegnum tíðina. „Það var gaman að prófa annað en núna erum við bara við,“ segir hann og Jesper Binzer söngvari bætir við: „Þetta kemur beint frá hjartanu!“