Á þessum degi árið 1963 stóð til að Bob Dylan myndi spila í spjallþætti Eds Sullivans.
Á þessum degi árið 1963 stóð til að Bob Dylan myndi spila í spjallþætti Eds Sullivans. Tónlistarmaðurinn gekk hins vegar út af æfingunni fyrir þáttinn þegar honum var tjáð að hann mætti ekki spila lagið sitt „Talkin' John Birch Paranoid Blues“. Ástæðan var sú að lagið þótti hæðast að bandaríska hernum og aðskilnaðarstefnunni. Yfirmenn CBS-sjónvarpsstöðvarinnar báðu hann að spila annað lag í staðinn en hann afþakkaði og sagðist ekki koma fram í þættinum ef hann fengi ekki að spila það sem hann vildi.