— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Glatt var á hjalla í gær þegar fulltrúar Krakkahesta heimsóttu Leikskóla Seltjarnarness og leyfðu börnunum að kynnast klárunum.
Glatt var á hjalla í gær þegar fulltrúar Krakkahesta heimsóttu Leikskóla Seltjarnarness og leyfðu börnunum að kynnast klárunum. Teymt var undir öllum þeim krökkum sem fóru á bak hestunum – og svo fengu allir myndir af sér úr hinum örstutta útreiðartúr. Er ekki að efa að þarna voru margir efnilegir knapar framtíðarinnar, en hestamennskan er sport sem nýtur mikilla og vaxandi vinsælda þjóðarinnar.