Octavia Spencer er eftirsótt.
Octavia Spencer er eftirsótt.
Kvikmyndir Alþekkt er að myndir sem óvænt slá í gegn plægi akurinn fyrir aðrar myndir í svipuðum anda.
Kvikmyndir Alþekkt er að myndir sem óvænt slá í gegn plægi akurinn fyrir aðrar myndir í svipuðum anda. Þannig er von á tveimur spennumyndum seinna í mánuðinum sem taka á sambærilegum málum og hin feikivinsæla Get Out; það er kynþáttafordómum og menningarpólitík. Önnur er The Intruder með Dennis Quaid í aðalhlutverki og hin kallast Ma en þar fer Octavia Spencer fyrir mannskapnum. Í The Intruder eru svört hjón, sem flytja inn í nýtt húsnæði, áreitt af hvítum nágranna sínum og í Ma býður svört kona nokkrum unglingum að nota kjallarann hjá sér en mögulega eru þeir ekki allir þar sem þeir eru séðir.