Vörumerki Eitt þekktasta verkefnið sem The Value Engineers hefur unnið að var endurvörmerkjasetning flugfélagsins British Airways árið 2011.
Vörumerki Eitt þekktasta verkefnið sem The Value Engineers hefur unnið að var endurvörmerkjasetning flugfélagsins British Airways árið 2011. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fréttaskýring Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Íslensk fyrirtæki eru góð í að tengja óblíða og stórbrotna náttúru landsins við vörumerki sín. Þetta er mat Ed Hebblethwaite stjórnanda og eins stjórnarmanna stefnumótunar – og markaðsgreiningarfyrirtækisins The Value Engineers í London.

Fréttaskýring

Þóroddur Bjarnason

tobj@mbl.is

Íslensk fyrirtæki eru góð í að tengja óblíða og stórbrotna náttúru landsins við vörumerki sín. Þetta er mat Ed Hebblethwaite stjórnanda og eins stjórnarmanna stefnumótunar – og markaðsgreiningarfyrirtækisins The Value Engineers í London.

„Þýski bílaframleiðandinn BMW notar rómaða þýska verkfræðikunnáttu til að aðgreina sitt vörumerki, í Sviss nota menn mikla tækniþekkingu í landinu í sama tilgangi, Ítalir leggja áherslu á næmleika og hönnun, Frakkar byggja mikið á ástríðunni, en hér hafa fyrirtækin komist upp á lag með að nota hrjúfa og óblíða náttúruna til að ná árangri,“ segir Hebblethwaite í samtali við Morgunblaðið.

Snjallt markaðsfólk

Hann segist hafa komist í kynni við margt mjög snjallt markaðsfólk hér á landi síðan hann hóf að venja komur sínar hingað til lands fyrir um 12 árum í tengslum við samstarf við auglýsingastofuna Hvíta húsið. Hann segir Íslendinga sér á báti þegar kemur að samstarfi. „Ég er mjög hrifinn af því að vinna með Íslendingum. Þeir eru fljótir að hugsa og taka ákvarðanir, og mjög praktískir í hugsunarhætti. Þetta veitir þeim samkeppnisforskot,“ segir Hebblethwait og bætir við: „Íslendingar kunna að koma hlutunum á hreyfingu. Þeir eru lausir við allt kjaftæði og yfirlæti. Þeir bretta bara upp ermarnar og finna út úr hlutunum.“

Hebblethwaite er staddur hér á landi um þessar mundir til að undirbúa nokkur samstarfsverkefni með Hvíta húsinu, sem snúast um markaðssetningu í Lundúnum, en hlutverk Hebblethwaite, og The Value Engineers, er þá að tengja auglýsingastofuna inn í hentugt net samstarfsaðila í borginni.

„Ég er mjög ánægður að koma og vinna enn og aftur með Hvíta húsinu. Þetta eru allt verkefni sem ég veit ekki ennþá nákvæmlega hver eru, en eiga að fara í gang síðar í sumar.“

Innleiða í smáatriðum

Til að útskýra nánar hvernig The Value Engineers vinnur, segir Hebblethwaite að fyrirtækið sé ekki í auglýsingagerð eða almannatengslum, heldur hjálpi til við að greina markaði, setja upp stefnu og fylgja henni svo eftir í smáatriðum, til að tryggja árangur. Hann nefnir til frekar útlistunar verkefni sem fyrirtækið vann fyrir breska flugfélagið British Airways. „Við leiddum og framfylgdum stefnumótunarvinnu í hinni frægu herferð British Airways frá árinu 2011, „To fly. To Serve“, en þar var það risastór auglýsingastofa, BBH, sem sá um hinar snilldarlegu auglýsingar sem voru gerðar.“

Hebblethwaite segir að verkefnið, hafi komið British Airways á kortið aftur í fluggeiranum, með áherslu á góða þjónustu. Í dag hafi félagið þó eitthvað gefið eftir í þeim efnum, og flugfélög eins og Emirates og Virgin siglt fram úr. „To Fly. To Serve-herferðin bætti afkomu flugfélagsins verulega, en aðalmálið í okkar starfi var að breyta hugarfari starfsfólksins, og láta alla einblína á hvað þyrfti að gera til að félagið gæti veitt fyrsta flokks þjónustu. British Airways varð með þessu aftur þjónustumiðað flugfélag, og við með okkar vinnu tryggðum að þú sem viðskiptavinur fékkst strax og þú komst um borð, fullvissu fyrir því að þú myndir njóta flugsins. Unnið var náið að útfærslunni með öllu starfsfólkinu, flugliðunum, fólkinu sem sá um farangurinn, o.s.frv.“

Spurður um álit á Íslandi sem vörumerki, og hvernig landanum gangi að fanga athygli umheimsins, segir Hebblethwaite að hann hafi upplifað miklar breytingar á síðustu 12 árum. „Nú er Ísland komið á sérlista allra á aldrinum 40-60 ára yfir óskaáfangastaði í heiminum. Fólk vill fara til Maldíveyja, á Inkaslóðir, til Ástralíu, Nýja-Sjálands og svo til Íslands. Ísland er enn dularfullt, en dulúðin er þekkt, og fólk veit núna betur hvað það er að fara út í.“

Ekki eldflaugavísindi
» „Vörumerkjaþróun er ekki eldflaugavísindi. Það þarf bara að spyrja sig „af hverju“. Af hverju erum við mikilvæg? Af hverju erum við hér? Hvernig erum við öðruvísi? Svo þurfa fyrirtæki að vera sönn og heiðarleg í því sem þau gera. Ég held að íslensk fyrirtæki séu einmitt góð í því að vera sönn og heiðarleg.“