Langamma og langafi, Elísabet drottning og Philip prins, virðast alsæl með nýjasta afkomandann og móðuramman, Doria Ragland, horfir hugfangin á dóttursoninn. Harry og Meghan völdu að kynna drenginn vafinn í hvítt og með húfu.
Langamma og langafi, Elísabet drottning og Philip prins, virðast alsæl með nýjasta afkomandann og móðuramman, Doria Ragland, horfir hugfangin á dóttursoninn. Harry og Meghan völdu að kynna drenginn vafinn í hvítt og með húfu. — AFP
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Um fáa er meira rætt á Bretlandseyjum en nýjasta meðlim konungsfjölskyldunnar, Archie Harrison Mountbatten-Windsor. Ekki eru það þó aðeins hamingjuóskir sem dynja á foreldrunum. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is

Heitir hann ekki örugglega Archibald en ekki bara Archie? Ég trúi ekki að þau hafi nefnt hann gælunafni!“ Svona einhvern veginn hljómar ein af athugasemdunum sem fylgjandi hertogahjónanna af Sussex á Instagram skrifaði undir mynd sem fylgdi tilkynningu um að sonur þeirra hefði verið nefndur. Drengurinn ber nafnið Archie Harrison Mountbatten-Windsor en instagram-fylgjendum foreldranna þykir við hæfi að hafa sína skoðun á nafninu, myndunum, titlinum og flestu sem viðkemur litlu fjölskyldunni í Frogmore.

Harry prins, hertoginn af Sussex, hitti fjölmiðla hinn 6. maí síðastliðinn og tilkynnti að sonur hans og Meghan Markle hertogaynju væri kominn í heiminn og að móður og barni heilsaðist vel. Tveimur dögum síðar tilkynntu þau svo í sameiningu nafn drengsins, Archie Harrison Mountbatten-Windsor, og þá var birt mynd af því þegar drottningin leit hann augum fyrst.

Hann hreyfir sig ekki

Eintóm gleði fylgdi þessum tilkynningum eins og jafnan þegar nýtt líf kviknar. Fylgjendur hjónanna á Instagram tóku við sér og létu rigna yfir þau hamingjuóskum. En þó fór það ekki svo að gleðin ein væri ríkjandi í athugasemdum. „Hvort er hann eiginlega hvítur eða svartur á litinn?“ eru meðal spurninga sem komu undir myndina af hinum nýfædda syni. „Hið konunglega barn hreyfði sig ekki neitt! Ég velti fyrir mér hvort þetta er alvörubarn eða dúkka? Við munum víst aldrei vita það því þau vilja halda öllu leyndu!“ segir önnur mannvitsbrekkan sem fylgist með fjölskyldunni á Instagram.

Foreldrarnir hafa tilkynnt að hinn nýfæddi sonur komi ekki til með að bera konunglegan titil á borð við jarl eða hertoga heldur verði einfaldlega kallaður Archie en skeyta megi „master“ fyrir framan. Sumir fylgjendur eru ósáttir og segir einn aðdáandi konunglegra titla: „Þau ættu að hugsa um hvað okkur finnst, ekki bara um sig sjálf!“

Hertogahjónin, sem halda úti instagram-reikningi sem yfir 7,5 milljónir manna fylgja undir nafninu Sussexroyals, þurfa sannarlega að hafa þykkari skráp en flestir nýbakaðir foreldrar. Nettröllum er víst ekkert heilagt og nýfædd börn eru því miður ekki undanþegin gagnrýni. Langstærstur hluti fylgjenda hjónanna hefur þó aðeins jákvæðar athugasemdir um soninn og foreldrana og ber flestum saman um að myndin fræga, þar sem langamma drottning ber drenginn augum í fyrsta sinn, sé einstaklega falleg. Líklegt verður þó að teljast að Archie litli þurfi að koma sér upp álíka þykkum skráp og foreldrar hans þegar fram líða stundir.

Fyrirmyndin íslensk?

Nafnið Archie kom flestum á óvart enda hafði því verið spáð að hinn konungborni drengur bæri hefðbundnara nafn eins og Alexander, Albert eða James. Síðara nafn hins stutta, Harrison, kom jafnvel meira á óvart. Archie þykir afar breskt nafn en Harrison vísun í bandarískar rætur móðurinnar. Harrison þýðir vitanlega sonur Harry's og því má velta fyrir sér hvort foreldrar Archies litla sæki fyrirmynd í íslenska nafnahefð.

Eftirnafnið Mountbatten-Windsor er myndað er úr eftirnöfnum Elísabetar II. (Windsor) og Philips prins (Mountbatten) og hefð er fyrir að karlkyns afkomendur beri þótt þeir noti það ekki allir. Harry, faðir Archies, notar t.d. sjaldan eftirnafn. Í hernum kallaði hann sig þó Harry Wales, með vísan í að faðir hans er prinsinn af Wales. Það þykir virðingarvottur fyrir langömmu og langafa að Archie litli beri eftirnöfn þeirra.