Agnes M. Sigurðardóttir
Agnes M. Sigurðardóttir
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, telur ótækt að Alþingi samþykki frumvarpið um þungunarrof óbreytt. Þetta kemur fram í aðsendri grein biskups í blaðinu í dag. Agnes segir tvennt sérstaklega umhugsunarvert.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, telur ótækt að Alþingi samþykki frumvarpið um þungunarrof óbreytt. Þetta kemur fram í aðsendri grein biskups í blaðinu í dag. Agnes segir tvennt sérstaklega umhugsunarvert. Annars vegar sú breyting á hugtakanotkun sem lögð er til, þar sem hugtakið þungunarrof er nú notað í stað fóstureyðingar. ,,Hið nýja hugtak vísar á engan hátt til þess lífs sem sannarlega bærist undir belti og er vísir að nýrri mannveru,“ skrifar hún. Þá gagnrýnir Agnes breytinguna á tímaramma þar sem lagt er til að þungunarrof verði heimilt fram að 22. viku meðgöngu. Nýjar tillögur veki grundvallarspurningar um mannhelgina og framgang lífs hér í heimi. 27