Kirk gamli Hammett var í óvenjulegu veseni á tónleikum í Mílanó í vikunni.
Kirk gamli Hammett var í óvenjulegu veseni á tónleikum í Mílanó í vikunni.
Málmur Kirk Hammett, gítarleikari Metallica, var svo óheppinn að hrasa og falla aftur fyrir sig á sviði á miðjum tónleikum í Mílanó í vikunni. Svo sást undir iljar honum.
Málmur Kirk Hammett, gítarleikari Metallica, var svo óheppinn að hrasa og falla aftur fyrir sig á sviði á miðjum tónleikum í Mílanó í vikunni. Svo sást undir iljar honum. Hann var þá að taka sóló í laginu Moth Into Flame en rann til á blautu fetlaborðinu með fyrrgreindum afleiðingum. Sem betur fer varð Hammett ekki meint af fallinu og stóð jafnharðan á fætur. Gerði kappinn hlæjandi gys að seinheppni sinni áður en hann kláraði sólóið. Að tónleikum loknum skellti hann sér beint á Instagram, birti myndir af fallinu og bætti við að svo blautt hefði verið í rigningunni í Mílanó að honum hefði liðið eins og hann væri að spila á hljóðfæri sitt í steypibaðinu heima. Metallica er ennþá á Worldwired-túrnum sem standa mun fram á næsta ár.