Stacy Martin er ung og upprennandi leikkona.
Stacy Martin er ung og upprennandi leikkona.
Leiklist Fransk/enska leikkonan Stacy Martin viðurkennir í viðtali við breska blaðið The Independent að hún hafi aldrei fengið greidd sambærileg laun og karlleikarar í þeim kvikmyndum sem hún hefur komið fram í.
Leiklist Fransk/enska leikkonan Stacy Martin viðurkennir í viðtali við breska blaðið The Independent að hún hafi aldrei fengið greidd sambærileg laun og karlleikarar í þeim kvikmyndum sem hún hefur komið fram í. Martin er líklega þekktust fyrir hlutverk sitt í mynd Lars von Triers, Nymphomaniac. Að hennar sögn stafar þetta af því að framleiðendur kvikmynda telji almennt að græða megi meira á því að tefla fram körlum en konum í kvikmyndum. Martin segir þetta smám saman að breytast en þó sé ennþá mikið verk að vinna. „Borgið mér meira!“ lætur hún svo hafa eftir sér í viðtalinu.