Reykjavík Loftslagsstefna borgarinnar fær afbragðseinkunn.
Reykjavík Loftslagsstefna borgarinnar fær afbragðseinkunn. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Reykjavíkurborg er meðal 7% höfuðborga heimsins sem fá A í einkunn í loftslagsmálum hjá samtökunum Carbon Disclosure Project (CDP).

Magnús Heimir Jónasson

mhj@mbl.is

Reykjavíkurborg er meðal 7% höfuðborga heimsins sem fá A í einkunn í loftslagsmálum hjá samtökunum Carbon Disclosure Project (CDP). Um er að ræða óhagnaðardrifin umhverfisverndarsamtök sem gefa alls 596 stórborgum um allan heim einkunn eftir því hversu vel þeim hefur tekist að draga úr útblæstri og koma sér upp loftslagsstefnu.

Reykjavík í sérflokki

Af þessum 596 borgum fá einungis 43 einkunnina. Reykjavík, París, London, Barcelona, Höfðaborg og Hong Kong eru meðal þeirra borga sem fá hæstu einkunn CDP.

Segja samtökin að fjórar borgir hafi það að markmiði að vera reknar alfarið á endurnýjanlegum orkugjöfum: París, San Francisco, Canberra og Reykjavík sem hafi nú þegar náð því markmiði.

Af þeim 43 borgum sem hljóta A í einkunn eru 13 borgir sem hafa það að markmiði að vera algjörlega kolefnisjafnaðar fyrir árið 2050. Reykjavík er meðal þeirra.

„Við hvetjum borgir á heimsvísu til að stíga upp í aðgerðum sínum og setja sér markmið í samræmi við það sem nýjustu rannsóknir segja til um að þurfi að gera til að koma í veg fyrir hættuna sem fylgir loftslagsbreytingum,“ er haft eftir Kyra Appleby, framkvæmdastjóra borgarsviðs hjá CDP, í tilkynningu.