Elías Már Ómarsson skoraði þrennu í 5:4-sigri Excelsior á útivelli gegn Heracles í efstu deild Hollands í fótbolta í gær. Elías skoraði fyrstu tvö mörk Excelsior í fyrri hálfleik, áður en hann gulltryggði dramatískan sigur í uppbótartíma.

Albert Guðmundsson lék fyrstu 75 mínúturnar fyrir AZ Alkmaar í sterkum 1:0-heimasigri á PSV. Ajax er með pálmann í höndunum eftir úrslitin og nægir jafntefli gegn De Graafschap í lokaumferðinni til að tryggja sér Hollandsmeistaratitilinn.