Sædís Vigfúsdóttir fæddist 10. júní 1946. Hún lést 7. apríl 2019.

Útför Sædísar fór fram 15. apríl 2019.

Elsku vinkona okkar:

Far þú í friði,

friður Guðs þig blessi,

hafðu þökk fyrir allt og allt.

Gekkst þú með Guði,

Guð þér nú fylgi,

hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.

(Valdimar Briem)

Hafðu þökk fyrir alla vináttuna, ráðleggingarnar og hlýjuna gegnum áratugina.

Elsku Sædís okkar, á hugann leita ótal minningar, ferðalögin okkar saman, hlýjan frá þér, heimsóknir og allt spjallið. Við verðum ævinlega þakklát fyrir að vera vinur þinn. Fjölskyldunni sendum við innilegar samúðarkveðjur, guð styrki ykkur og verndi ykkur öll.

Minning um einstaka perlu lifir.

Guðlaug (Gulla) og Arnór.