Rut Jónsdóttir og samherjar hennar í Esbjerg þurftu að sætta sig við silfurverðlaunin í EHF-bikarnum þetta árið eftir tvo úrslitaleiki gegn ungverska liðinu Siófok.
Rut Jónsdóttir og samherjar hennar í Esbjerg þurftu að sætta sig við silfurverðlaunin í EHF-bikarnum þetta árið eftir tvo úrslitaleiki gegn ungverska liðinu Siófok. Bestu ungversku kvennaliðin eru geysilega sterk og það sýndi sig í síðari úrslitaleiknum á laugardaginn þegar Siófok sigraði 26:21.
Segja má að Ungverjarnir hafi verið í ágætri stöðu í úrslitarimmu liðanna eftir fyrri leikinn í Danmörku en þar gerðu liðin jafntefli 21:21. Rut skoraði ekki fyrir Esbjerg í síðari leiknum. kris@mbl.is