Áskorun „Lífið heldur áfram og maður tekst á við næstu áskorun,“ segir Ari Þór.
Áskorun „Lífið heldur áfram og maður tekst á við næstu áskorun,“ segir Ari Þór. — Morgunblaðið/Hari
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Viðtal Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.

Viðtal

Silja Björk Huldudóttir

silja@mbl.is

„Þetta er mjög flott verk og fjölbreytt og á sama tíma krefjandi og skemmtilegt,“ segir Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari um konsert fyrir fiðlu og selló eftir Johannes Brahms sem hann leikur einleik í ásamt Sigurgeiri Agnarssyni sellóleikara á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) í Eldborg Hörpu á fimmtudag kl. 19.30 undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar. Á efnisskránni er einnig Akademískur hátíðarforleikur eftir Brahms, Sinfónía nr. 3 eftir Louise Farrenc og España eftir Emmanuel Chabrier.

„Við Sigurgeir höfðum fyrst orð á því við stjórnendur Sinfóníunnar fyrir um tíu árum að okkur langaði til að spila þennan konsert Brahms með hljómsveitinni,“ segir Ari Þór og rifjar upp að þá hafi þeir Sigurgeir báðir verið aðstoðarleiðarar hvor í sinni hljóðfærarödd. „Það kom alltaf eitthvað upp á sem frestaði áformunum og í millitíðinni spiluðum við Beethoven-þríkonsertinn með hljómsveitinni árið 2013. Þegar okkur loks bauðst að flytja þetta núna stukkum við á tækifærið.“

Óhræddir við að gagnrýna

Aðspurður segir Ari Þór þá Sigurgeir hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina. „Við höfum spilað mikið af kammertónlist, unnið saman í kennslu og erum góðir vinir,“ segir Ari Þór og tekur fram að þeir Sigurgeir séu býsna sammála í nálgun sinni á konsertinn þegar komi að hraðavali og styrkleikabreytingum. „Lykillinn að góðu samstarfi okkar er að við erum óhræddir við að tjá skoðun okkar hvor við annan og koma með uppbyggilega gagnrýni þegar við á. Við höfum verið að bera saman bækur okkar með hjálp nútímatækninnar og sent hvor öðrum smáskilaboð og upptökur af völdum köflum til að stilla saman strengi. Flutningurinn byggist á góðu samtali okkar tveggja,“ segir Ari Þór og tekur fram að mikilvægt sé fyrir spilara í sinfóníuhljómsveitum að fá reglulega tækifæri til að spreyta sig sem einleikarar. „Krefjandi verkefni eins og að leika einleik halda manni í mjög góðu spilaformi. Það er líka mjög hollt að þurfa að hugsa sem einleikari en ekki bara sem hluti stórs hóps. Hlutverk einleikarans reynir á mann á allt annan hátt en að sitja í hljómsveitinni. Því fleiri og meira krefjandi verkefni sem maður fær því betri spilari verður maður sem aftur gagnast hljómsveitinni.“

Þar sem Ari Þór býr og starfar erlendis í dag liggur beint við að spyrja hvaða þýðingu það hafi fyrir hann að fá tækifæri til að koma heim og leika fyrir landsmenn. „Það hefur mikla þýðingu fyrir mig. Þetta er í fyrsta sinn sem ég leik einleik með Sinfóníunni frá því ég hætti í henni, en ég sagði upp árið 2015. Mér finnst skipta miklu máli að halda góðum tengslum við tónlistarlífið hérlendis og fá að spila fyrir íslenska áheyrendur. Frá því ég flutti út hef ég lagt mig fram um að halda góðum tengslum við tónlistarlífið hérlendis og kem mjög reglulega til landsins, allt frá þremur til tíu sinnum á ári, til að sinna tónlistarverkefnum,“ segir Ari Þór sem á umliðnum árum hefur reglulega komið fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins, sinnt kennslu og komið fram á Reykholtshátíð ásamt því að vera framkvæmdastjóri fyrir Tónlistarakademíuna í Hörpu sem árlega stendur fyrir sumarnámskeiðum.

Skemmtilegt ævintýri

Ari Þór lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 2001 og stundaði frekara nám í Bandaríkjunum. Á árunum 2006-2014 starfaði hann hjá SÍ og var meðal annars leiðari 2. fiðlu hljómsveitarinnar. Fyrir fimm árum söðlaði hann um, flutti til Helsinki og hefur síðustu ár verið leiðari 2. fiðlu Fílharmóníusveitarinnar í Helsinki. Í mars tók hann síðan við sem leiðari 2. fiðlu hjá Fílharmóníusveit Ísraels til eins árs. „Ég bý núna í Tel Aviv og mér líður mjög vel þar,“ segir Ari Þór og tekur fram að hann finni ekki fyrir þeim átökum sem í landinu geisa. „Ég upplifi Tel Aviv sem frjálslynda borg í anda Evrópu og upplifi mig öruggan þar,“ segir Ari Þór og rifjar upp að hann hafi skroppið til borgarinnar í frí í fyrra og umsvifalaust heillast af staðnum. „Þegar þessi eins árs staða var auglýst stuttu síðar ákvað ég að slá til, enda gaman að breyta til. Ég fór í prufuspilið og þau buðu mér stöðuna. Þetta er mjög skemmtilegt ævintýri,“ segir Ari Þór og viðurkennir að ekki sé alveg eins auðvelt að skreppa heim til Íslands frá Ísrael, þar sem ekki sé lengur beint flug í boði, samanborið við Helsinki þar sem daglega sé boðið upp á beint flug. „Meðan ég dvel í Ísrael mun ég því sennilega ekki koma alveg eins oft heim og áður,“ segir Ari Þór og tekur fram að sér hafi á síðustu árum liðið mjög vel í Helsinki þar sem vel fari um hann.

Spurður hvernig það hafi komið til að hann sótti upprunalega um stöðu erlendis segir Ari Þór það í raun ekki hafa komið til af góðu. „Ég ákvað að leita út fyrir landsteina eftir fremur leiðinlegt tímabil með Sinfóníunni. Árið 2011 sótti ég um stöðu konsertmeistara og þá fór í gang mjög sérstakt ráðningarferli sem tók hálft annað ár. Við vorum tvö sem fengum prufuvikur, en samtímis var staðan auglýst erlendis og haldið prufuspil í London. Þegar loks var ráðið í stöðuna leituðum við bæði, sem fengið höfðum prufuvikur, til umboðsmanns Alþingis sem komst, hálfu öðru ári seinna, að þeirri niðurstöðu að málsmeðferðin við ráðningu í starfið hefði ekki verið í samræmi við reglur hljómsveitarinnar. Í raun var allt ráðningarferlið ólöglegt. Mér þótti gott að fá þessa afdráttarlausu niðurstöðu umboðsmanns Alþingis. Þetta var afar erfiður tími og mér sárnaði þetta mjög. Ég sá því ekki fyrir mér að ég gæti starfað áfram innan hljómsveitarinnar og ákvað að leita fyrir mér erlendis, sem endaði með ráðningunni í Helsinki,“ segir Ari Þór og tekur fram að mótlætið hér heima hafi opnað augu hans fyrir tækifærum erlendis sem hafi reynst honum til góðs þegar upp var staðið.

Nýjar dyr opnuðust

„Lífið heldur áfram og maður tekst á við næstu áskorun. Ég hef fengið fleiri tækifæri úti, verið gestakonsertmeistari í Stokkhólmi í sex vikur og einnig gestakonsertmeistari í Toulouse í Frakklandi í þrjár vikur. Þetta hefði aldrei gerst ef ég hefði starfað áfram á Íslandi. Þannig hafa opnast fyrir mér dyr sem ég hefði aldrei bankað á ella. Það er bæði spennandi og mikil viðurkenning að fá að spila með frábærum hljómsveitum úti í heimi sem maður hafði fram að því aðeins dáðst að á Youtube. Það hefur líka verið frábært að fá tækifæri til að kynnast annarri menningu og fólki í ólíkum löndum,“ segir Ari Þór og tekur fram að í ljósi forsögunnar þyki sér sérlega vænt um að fá tækifæri til að leika einleik með SÍ og vonar að fleiri tækifæri gefist til þess í framtíðinni.

Spurður hvar hann sjái sjálfan sig eftir tíu ár segist Ari Þór sannfærður um að hann muni enn búa og starfa erlendis. „Ég er ekki að fara að flytja heim neitt á næstunni. Mér líður vel úti, sem skýrist kannski af því að ég ólst að hluta til upp erlendis,“ segir Ari Þór og rifjar upp að hann hafi búið í Bandaríkjunum frá því hann var fimm til tíu ára meðan foreldrar hans voru þar í námi. „Mamma er frá Mexíkó þannig að ég á stóra fjölskyldu þar. Ég hef því alltaf haft sterk tengsl við útlönd frá því ég man eftir mér. Það er aldrei að vita nema ég flytji heim seinna, en það verður ekki í bráð.“