Ferðafélaginn Glöggir lesendur hafa eflaust veitt því athygli hve tíður gestur lúxus-ferðatöskuframleiðandinn Rimowa er á síðum blaðsins. Er enda hönnuðir Rimowa duglegir að tefla fram ómótstæðilegum sérútgáfum með nokkurra mánaða millibili.

Ferðafélaginn

Glöggir lesendur hafa eflaust veitt því athygli hve tíður gestur lúxus-ferðatöskuframleiðandinn Rimowa er á síðum blaðsins. Er enda hönnuðir Rimowa duglegir að tefla fram ómótstæðilegum sérútgáfum með nokkurra mánaða millibili.

En það eru fleiri áltöskur á markaðinum, og kominn tími til að Halliburton komist að. Ef eitthvað er má segja að Halliburton geri enn merkilegri töskur, og voru t.d. Halliburton-töskur notaðar til að flytja sýnishorn frá tunglinu til jarðar fyrir hálfri öld. Þá er hefð fyrir því í Hollywood-myndum að vondir jafnt sem góðir karlar noti Zero Halliburton-töskur undir hvort heldur sem er lausnarfé, hátæknibúnað eða einfaldlega nærbuxur til skiptanna.

Nýjasta viðbótin við vöruúrvalið er 1.500 dala sérútgáfa, framleidd í 800 eintökum. Útlitið er stílhreint og tímalaust eins og Halliburton er von og vísa en lásinn búinn fingrafaraskanna. ai@mbl.is