Sólríkja Víða hefur verið mjög sólríkt og hlýtt það sem af er sumri.
— Morgunblaðið/Eggert
Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Úrkoma á landinu hefur aðeins mælst 1,9 mm það sem af er júnímánuði, sú næstminnsta sömu daga á öldinni. Sjónarmun þurrara var sömu daga árið 2012.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Úrkoma á landinu hefur aðeins mælst 1,9 mm það sem af er júnímánuði, sú næstminnsta sömu daga á öldinni. Sjónarmun þurrara var sömu daga árið 2012. Þetta kemur fram á vef Trausta Jónssonar veðurfræðings, Hungurdiskum, en þurrt hefur verið um nær allt land. Miðast færsla hans við 10. júní.
Árin 1924 og 1935 mældist engin úrkoma í Reykjavík fyrstu tíu daga júnímánaðar. Aðeins ellefu sinnum hefur úrkoma mælst minni en nú. Á Akureyri hefur úrkoma mælst 3,0 mm, langt neðan meðallags.
Það sem af er júní hefur verið bjart og þurrt syðra, en svalara nyðra að því er segir í færslu Trausta. Meðalhiti í Reykjavík 8,9 stig, en 5,9 stig á Akureyri.
Sólríkt í sumarbyrjun
Sólskinsstundir fyrsta þriðjung júnímánaðar voru að meðaltali 15,7 um allt sunnan- og vestanvert landið, en það er met að sögn Trausta. Alls voru þær 157 fyrstu tíu daga mánaðarins, en næstflestar mældust þær í Reykjavík sömu daga árið 1924, 145,4. Fæstar voru þær þessa daga árið 2013, aðeins 13,4. Á síðasta ári voru sólskinsstundir fyrstu tíu daga júnímánaðar 22,9. Við Mývatn höfðu mælst 65 sólskinsstundir í júní.