Valþór Ingi Karlsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari karlaliðs Elite Volley Aarhus en liðið leikur í dönsku úrvalsdeildinni í blaki.
Valþór Ingi Karlsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari karlaliðs Elite Volley Aarhus en liðið leikur í dönsku úrvalsdeildinni í blaki. Valþór Ingi var aðstoðarþjálfari liðsins á síðasta tímabili og stýrði liðinu í nokkrum leikjum undir lok keppnistímabilsins.
Það er svo sannarlega ekki daglegt brauð að Íslendingar taki að sér þjálfun liða í úrvalsdeildum í blaki utan Íslands.
Valþór Ingi lék með KA hér heima áður en hann söðlaði um og flutti til Danmerkur fyrir tveimur árum. iben@mbl.is