[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
6. umferð Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ef svo heldur fram sem horfir verður botnbaráttan í úrvalsdeild kvenna í fótbolta, sem kennd er við Pepsi Max, ekki síður spennandi en einvígi Breiðabliks og Vals um Íslandsmeistaratitilinn.

6. umferð

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Ef svo heldur fram sem horfir verður botnbaráttan í úrvalsdeild kvenna í fótbolta, sem kennd er við Pepsi Max, ekki síður spennandi en einvígi Breiðabliks og Vals um Íslandsmeistaratitilinn.

Deildin virðist vera að skiptast í þrennt þar sem Þór/KA gæti fengið keppni frá ÍBV og mögulega Stjörnunni um þriðja sætið, en hin fimm liðin, Selfoss, HK/Víkingur, Fylkir, Keflavík og KR, virðast geta unnið hvert annað hvenær sem er.

Eins merkilegt og það er, þegar deildin er svona jöfn, hefur ekki einn einasti leikur í fyrstu sex umferðunum endað með jafntefli.

Keflavík er tvímælalaust lið sjöttu umferðar. Nýliðarnir höfðu tapað fyrstu fimm leikjum sínum, á fyrsta ári Keflavíkur í deildinni í heilan áratug, og lánið hafði satt best að segja ekki leikið við Suðurnesjastúlkurnar. Þær hefðu hæglega getað krækt í stig í þremur af fyrstu fimm leikjunum. En í Vesturbænum sprungu þær hreinlega út og gjörsigruðu KR 4:0. Keflavík er með í sínum röðum hina öflugu Natöshu Anasi, og KR réð ekkert við hana í vítateig sínum þar sem Natasha skoraði tvö skallamörk. Farið er að ræða um hana sem besta leikmann deildarinnar í ár, a.m.k. úr hópi varnarmanna.

Keflavíkurliðið sýndi í leiknum að það er til alls líklegt og getur lagt hvaða lið sem er á góðum degi.

Staða KR er hinsvegar orðin slæm. Vesturbæjarliðið er með mikla reynslu í sínum hópi en er þegar búið að tapa fyrir þremur af keppinautunum í neðri hluta deildarinnar og virðist eiga erfiða baráttu framundan.

Valur sigldi fram úr Breiðabliki hvað markatölu varðar með því að gjörsigra Fylki 6:0 á Hlíðarenda á meðan Breiðablik vann Stjörnuna naumlega, 1:0, í Garðabæ. Liðin eru bæði með fullt hús stiga en Valur er kominn sex mörkum á undan í markamismun. Ef svo heldur fram sem horfið gæti markatalan ráðið úrslitum í einvígi liðanna. Fyrra uppgjör þeirra verður á Hlíðarenda í 8. umferðinni, miðvikudaginn 3. júlí.

Elín upp um þrjú sæti

Landsliðskonan Elín Metta Jensen úr Val var besti leikmaður 6. umferðar að mati Morgunblaðsins. Elín átti nánast fullkominn leik þegar Valur burstaði Fylki en hún skoraði fjögur markanna og átti þátt í hinum tveimur í 6:0 sigrinum. Betra gerist það varla og Elín varð fyrir vikið fyrst leikmanna í deildinni til að fá 3 M á þessu keppnistímabili.

Þó Elín sé aðeins 24 ára gömul er þetta hennar tíunda keppnistímabil með meistaraflokki Vals. Hún skoraði sitt fyrsta mark 15 ára gömul, í fyrsta leiknum, 7:2 sigri á Haukum, árið 2010, og hefur nú skorað 94 mörk í 123 leikjum í úrvalsdeildinni. Hún varð með fernunni gegn Fylki þriðji markahæsti leikmaður Vals í deildinni frá upphafi, fór uppfyrir bæði Rakel Logadóttur (92) og Dóru Maríu Lárusdóttur (91). Aðeins Margrét Lára Viðarsdóttir (148) og Kristín Ýr Bjarnadóttir (104) hafa skorað fleiri mörk fyrir Val.

Elín er nú orðin 15. markahæsti leikmaður deildarinnar frá upphafi en hún fór upp um þrjú sæti á þeim lista með mörkunum fjórum.

Hún hefur skorað tvö mörk fyrir landslið Íslands á þessu ári og er þar komin með 10 mörk í 40 landsleikjum.

Hélt upp á 18 ára afmælið

Sveindís Jane Jónsdóttir , framherjinn efnilegi í Keflavík, var besti ungi leikmaður 6. umferðar að mati Morgunblaðsins. Sveindís hélt upp á 18 ára afmælið, sem var deginum áður, þegar Keflavík fékk sín fyrstu stig með stórsigrinum á KR, 4:0, þar sem hún skoraði eitt markanna og lék mjög vel, þannig að hún fékk 2 M fyrir frammistöðuna.

Þótt Sveindís sé ekki eldri hefur hún þegar skorað 44 mörk fyrir Keflavík í deildakeppninni en þetta er hennar fimmta ár í meistaraflokki félagsins. Þar lék hún fyrst 14 ára gömul árið 2015. Árið 2016 skoraði Sveindís 27 mörk fyrir Keflavík í 1. deild, 15 ára að aldri, og varð langmarkahæst í deildinni, tólf mörkum á undan þeirri næstu. Hún hefur gert tvö mörk í fimm fyrstu leikjum sínum með liðinu í efstu deild.

Þá hefur Sveindís skorað 16 mörk í 31 leik með yngri landsliðum Íslands.

* Cloé Lacasse skoraði sitt 50. mark fyrir ÍBV í deildinni þegar hún skoraði tvívegis í 3:1 sigrinum á HK/Víkingi. Hún er komin með sex mörk í síðustu þremur leikjum og orðin næstmarkahæst hjá ÍBV í deildinni frá upphafi. Aðeins Bryndís Jóhannesdóttir (64) hefur gert fleiri mörk.

* Ásta Eir Árnadóttir landsliðskona úr Breiðabliki lék sinn 100. leik í efstu deild í sigrinum á Stjörnunni.

* Anita Lind Daníelsdóttir úr Keflavík og Guðrún Gyða Haralz úr HK/Víkingi skoruðu báðar sitt fyrsta mark í efstu deild í 6. umferð.

* Anna Young, 24 ára enskur framherji, lék sinn fyrsta leik með ÍBV en hún kom í vor frá Sunderland. Þá lék Keflvíkingurinn Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir sinn fyrsta leik í efstu deild.