Ívan Golúnov fyrir rétti í Moskvu.
Ívan Golúnov fyrir rétti í Moskvu.
Yfirvöld í Rússlandi tilkynntu í gær að fallið hefði verið frá ákæru á hendur rannsóknarblaðamanninum Ívan Golúnov sem var handtekinn í Moskvu í vikunni sem leið og ákærður fyrir fíkniefnasölu.
Yfirvöld í Rússlandi tilkynntu í gær að fallið hefði verið frá ákæru á hendur rannsóknarblaðamanninum Ívan Golúnov sem var handtekinn í Moskvu í vikunni sem leið og ákærður fyrir fíkniefnasölu. Lögfræðingar og stuðningsmenn Golúnovs segja að lögreglan hafi komið fyrir fíkniefnum í bakpoka og íbúð hans áður en hann var handtekinn með það fyrir augum að stöðva rannsókn hans á spillingu embættismanna og fleiri málum. Ákæran vakti óvenjuhörð viðbrögð rússneskra dagblaða og margir Rússar gagnrýndu hana á samfélagsmiðlum.