Vandvirkni Shameeka Fishley skallar boltann í Garðabænum í gær.
Vandvirkni Shameeka Fishley skallar boltann í Garðabænum í gær. — Morgunblaðið/Arnþór
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Garðabær/Akureyri Edda Garðarsdóttir Baldvin Kári Magnússon Stjarnan tryggði sér mikilvæg stig í gærkvöldi þegar liðið lagði ÍBV 2:1 í 14. umferð Pepsí Max-deildar kvenna í knattspyrnu.

Garðabær/Akureyri

Edda Garðarsdóttir

Baldvin Kári Magnússon

Stjarnan tryggði sér mikilvæg stig í gærkvöldi þegar liðið lagði ÍBV 2:1 í 14. umferð Pepsí Max-deildar kvenna í knattspyrnu.

Fyrri hálfleikur var frekar bragðdaufur af hálfu beggja liða, það var bersýnilega taugatitringur í loftinu og margir háloftaboltar þeyttu kerlingar þvers og kruss um völlinn. Stjarnan var þó meira með boltann og hin efnilega Hildigunnur Ýr náði oft að skapa usla í vítateigskraðaki Eyjamanna, oftast eftir undirbúning Shameeku. Vestmannaeyingar áttu engin opin færi en þónokkur langskot sem oft rötuðu í hendur Birtu.

Stjörnukonur byrjuðu fjörugan seinni hálfleik með því að taka forystuna. Þar var að verki hin leikna Jana Sól en hún hljóp af miklum móði af vinstri vængnum fyrir mitt markið og kláraði meistaralega í netið. Vonbrigði kvöldsins voru viðbrögð Vestmannaeyinga við lykilaugnablikum leiksins. Sú eina sem var að valda verulegum usla var Clara Sigurðardóttir með áhlaupum og hörku. Sóknarlína ÍBV var taktlaus og dönsuðu þær engan veginn saman í opnum leik. Það þurfti hafsentinn van Slambrouck til að fá jöfnunarmarkið, en hún átti fína sendingu á Brenna Lovera eftir fast leikatriði við vítateig Stjörnunnar. Sú síðarnefnda skallaði boltann í tómt mark Stjörnunnar en Birta átti óþarfa úthlaup úr markinu.

Varnarlína ÍBV datt oft á tíðum alveg niður á endalínu og þ.a.l. náði miðjan náði ekki að aðstoða við varnarleikinn en það varð þeim dýrkeypt í tvígang. Stjarnan tryggði sér sigurinn aðeins fáeinum mínútum eftir jöfnunarmarkið. Hildigunni Ýri tókst þá loksins að koma boltanum í netið af stuttu færi eftir fyrirgjöf af hægri vængnum. Aðeins fjórar umferðir eru eftir og allir leikir skipta máli fyrir liðin í neðri hlutanum. ÍBV þarf að bæta leik sinn til að halda sér í deildinni.

Góðar 45 mínútur ekki nóg

Þór/KA vann 3:1 sigur á Keflavík á Akureyri. Keflavíkurliðið spilaði virkilega vel í fyrri hálfleik. Þór/KA liðið fékk nokkur færi í upphafi leiks en það sem eftir lifði fyrri hálfleiks var lítið að frétta í sóknarleik heimakvenna. Keflavíkur liðið beitti skyndisóknum og varnarmenn Þór/KA réðu illa við hraðann á framherjum Keflavíkur. Sveindís Jane kom liðinu verðskuldað yfir á 36. mínútu. Staðan var 0:1 í hálfleik og hefðu Keflvíkingar jafnvel getað bætt við öðru marki í fyrri hálfleik.

Í seinni hálfleik var allt annað að sjá Þór/KA liðið. Arna Sif jafnaði leikinn með skalla eftir um 50. mínútna leik og þá var eins og allur vindur væri úr gestunum. Andrea Mist kom Þór/KA yfir stuttu síðar áður en Arna bætti við öðru marki sínu og þriðja marki Þór/KA. 3:1 sigur heimakvenna staðreynd, sigurinn kemur liðinu upp fyrir Selfyssinga í þriðja sæti sem þó eiga leik til góða.

Það er svekkjandi fyrir Keflvíkinga að þrátt fyrir góða spilamennsku í fyrri hálfleik fari liðið tómhent heim. En þegar minni lið spila gegn Þór/KA dugar ekki að eiga einn góðan hálfleik. Eins og vill oft loða við lið sem eru í fallbaráttu fór allt sjálfstraust úr leik liðsins um leið og heimakonur náðu að jafna leikinn og eftir jöfnunarmarkið var aldrei spurning hvernig leikar myndu enda. Liðið getur þó tekið margt jákvætt úr leiknum. Fram undan eru fjórir leikir sem skera úr hvort Keflavík verði áfram meðal þeirra bestu á næsta ári. En liðið er nú aðeins einu stigi frá öruggu sæti í deildinni.

ÞÓR/KA – KEFLAVÍK3:1

0:1 Sveindís Jane Jónsdóttir 36.

1:1 Arna Sif Ásgrímsdóttir 50.

2:1 Andrea Mist Pálsdóttir 57.

3:1 Arna Sif Ásgrímsdóttir 65.

Gul spjöld

Hulda Björg Hannesdóttir, Stephany Mayor og Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA).

Dómari : Sveinn Arnarsson 8.

Áhorfendur : 211.

MM

Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)

M

Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA)

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Þór/KA)

Sveindís Jane Jónsdóttir (Keflavík)

Sophie Groff (Keflavík)

Aníta Lind Daníelsdóttir (Keflavík)

Natasha Anasi (Keflavík)

STJARNAN – ÍBV2:1

1:0 Jana Sól Valdimarsdóttir 47.

1:1 Brenna Lovera 68.

2:1 Hildigunnur Ýr Benediktsd. 72.

Gul spjöld

Viktoría V. Guðrúnardóttir og Kristján Guðmundsson (þjálfari) (Stjörnunni), Caroline Van Slambrouck (ÍBV).

Dómari : Elías Ingi Árnason, 6.

Áhorfendur : 187.

M

Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir (Stjörnunni)

Shameeka Fishley (Stjörnunni)

Anna María Baldursdóttir

(Stjörnunni)

Clara Sigurðardóttir (ÍBV)