„Það má alveg reikna með að þessi þrjú skip hafi skilað samanlagt um 180 milljónum króna í norðlenska hagkerfið og skapað fjölda manns vinnu,“ segir Pétur Ólafsson, hafnarstjóri á Akureyri, í samtali við Morgunblaðið.

Vísar hann í máli sínu til þess að í þessari viku komu þrjú stór skemmtiferðaskip til Akureyrar með hátt í ellefu þúsund manns, farþega og áhafnir. Er koma skipa mikil lyftistöng fyrir hafnir og bæi úti á landi. 2