Íslenska karlalandsliðið í handknattleik, skipað leikmönnum 19 ára og yngri, tapaði fyrir Egyptalandi í átta liða úrslitum á HM U19 í Skopje í Norður-Makedóníu í gær. Leiknum lauk með 35:31-sigri Egypta sem fara áfram í undanúrslit keppninnar.
Egyptar sem tefla fram mörgum stórum og stæðilegum leikmönnum tóku völdin í fyrri hálfleik. Staðan að honum loknum var 21:14, Egyptalandi í vil, og tókst íslenska liðinu ekki að brúa það bil að ráði í seinni hálfleik. Haukur Þrastarson og Tumi Steinn Rúnarsson voru markahæstir í íslenska liðinu með átta mörk hvor.
Íslenska liðið mun leika um 5.-8. sætið á mótinu ásamt miklum handboltaþjóðum: Frakklandi, Spáni og Ungverjalandi. Ísland mætir Frakklandi í næsta leik. Liðið sem vinnur mætir sigurliðinu hjá Spáni og Ungverjalandi í leik um 5. sætið en tapliðin leika um 7. sæti.
sport@mbl.is