Indversk vörn. S-AV
Norður | |
♠KD72 | |
♥108 | |
♦K4 | |
♣108754 |
Vestur | Austur |
♠G108654 | ♠-- |
♥Á75 | ♥G964 |
♦6 | ♦1098532 |
♣K96 | ♣ÁG2 |
Suður | |
♠Á93 | |
♥KD32 | |
♦ÁDG7 | |
♣D3 |
Suður spilar 3G.
Indverjinn Ajay Khare var hæverskur að koma ekki inn á spaða við sterkri laufopnun suðurs. En fyrir vikið fékk hann greinargóðar upplýsingar um spil sagnhafa og hitti á gott útspil.
Eftir byrjunina lauf-tígul-grand spurði norður um háliti, fékk upp fjórlit í hjarta og stökk þá í 3G. Þar með var ljóst að norður átti fjórlit í spaða og suður alla vega tvo. Útspil þar kom því ekki til greina og Khare lagði af stað með ♣6. Góð byrjun, en langt i land, eigi að síður.
Makker hans Raju Tolani tók á ♣Á og spilaði tvistinum til baka á drottningu og kóng Khare. Tími til að taka stöðuna upp á nýtt. Fimmta slaginn varð byggja upp í hjarta í hvelli og Khare skipti öskuvandað yfir í lítið hjarta – átta, nía og drottning. Þegar Tolani komst nokkru síðar inn á ♣G gat hann þrumað ♥G í gegnum kónginn og gleypt tíuna í leiðinni.