— AFP
Fjárfestar vestanhafs og austan óttast að stærstu hagkerfi heimsins horfi fram á samdrátt á komandi mánuðum. Nýjar tölur frá Þýskalandi sýna að landsframleiðsla þar hafi dregist saman um 0,1% á öðrum ársfjórðungi.

Flest benti til þess að hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum myndu lækka í viðskiptum gærdagsins. Tölur um einkaneyslu þar í landi vöktu hins vegar von með fjárfestum og þá gaf hálfsársuppgjör netverslunarrisans Alibaba til kynna að enn væri talsverður þróttur í stærstu hagkerfum heimsins.

Íslenski hlutabréfamarkaðurinn litaðist allur rauður í gær og lækkuðu nær öll félög í Kauphöll talsvert í kjölfar afkomuviðvörunar fasteignafélagsins Reita. Lækkaði úrvalsvísitalan um 3,3% í viðskiptum gærdagsins. 12