Afrekskona Þórdís Geirsdóttir í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði lætur ekki deigan síga í golfinu.
Afrekskona Þórdís Geirsdóttir í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði lætur ekki deigan síga í golfinu. — Ljósmynd/Sigurður Elvar/seth@golf.is
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Íslandsmót golfklúbba fyrir eldri kylfinga fer fram um helgina og verður keppni í 1. og 2. deild kvenna hjá golfklúbbi Öndverðarness. Þórdís Geirsdóttir, margfaldur meistari í golfi, er í öldungadeildarliði Keilis í Hafnarfirði, en þegar Íslandsmót golfklúbba fór fram í lok júlí var hún í kvennaliði Keilis í efstu deild 35. árið í röð.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Íslandsmót golfklúbba fyrir eldri kylfinga fer fram um helgina og verður keppni í 1. og 2. deild kvenna hjá golfklúbbi Öndverðarness. Þórdís Geirsdóttir, margfaldur meistari í golfi, er í öldungadeildarliði Keilis í Hafnarfirði, en þegar Íslandsmót golfklúbba fór fram í lok júlí var hún í kvennaliði Keilis í efstu deild 35. árið í röð.

„Þetta er svo skemmtilegt,“ segir Þórdís, sem byrjaði í golfi áður en hún varð ellefu ára 1976. „Ég elti bræður mína út á golfvöll, „stal“ kylfum frá þeim og féll strax fyrir íþróttinni, en fékk síðan hálft sett í fermingargjöf og eftir það varð ekki aftur snúið.“

Samkvæmt upplýsingum á golf.is voru 17.859 kylfingar skráðir félagar í golfklúbbum landsins 1. júlí síðastliðinn og hafði þeim fjölgað um 4% frá liðnu ári. Er það mesta fjölgun frá 2009. 5.748 konur voru á meðal félagsmanna en þegar Þórdís steig sín fyrstu skref á golfvellinum í Hafnarfirði voru þær lítt áberandi.

„Stelpum hefur oft verið ýtt út ef þær eru ekki nógu góðar en ég var svo heppin að vera „ein af strákunum“ og það bjargaði mér,“ rifjar Þórdís upp. „Þegar ég byrjaði voru strákar eins og Hörður Hinrik Arnarson og Úlfar Jónsson á sama báti og það hélt mér á floti að vera á pari við þá. Þess vegna var mér ekki ýtt út.“

Í landsliði í 37 ár

Eitt leiddi af öðru, Þórdís fór upp allan stigann, spilaði fyrst með B-landsliðinu 16 ára gömul, síðan í A-landsliðinu um árabil og er nú í öldungalandsliðinu. Hún ólst upp á holtinu í Hafnarfirði og hefur alltaf verið í Keili. „Ég átti heima í nokkur ár í Garðabæ en var fljót til baka og bý rétt hjá vellinum enda vil ég helst hvergi annars staðar vera.“

Miklar breytingar hafa orðið á öllum sviðum golfsins frá því Þórdís byrjaði að æfa íþróttina. Hún bendir á að eftir því sem konum hafi fjölgað hafi leikjum fjölgað og nú sé svo komið að þær spili jafnmarga leiki og karlarnir á Íslandsmóti golfklúbbanna. „Við erum á sama stigi og þeir,“ segir hún. Bætir við að gæði vallanna séu líka allt önnur og meiri en áður, kunnátta vallarstarfsmanna og þjálfara sömuleiðis að ónefndum spilurunum og búnaði þeirra. „Kylfingar verða alltaf betri og betri og þá er hætta á að vellirnir verði of litlir fyrir þessa bestu.“

Þórdís segist hafa mikið keppnisskap og það komi sér vel í golfinu. Félagsskapurinn og útiveran hafi líka mikið að segja. Hún byrjaði sem stelpa að æfa 800 m hlaup og lengri vegalengdir en sér ekki eftir því að hafa hætt í frjálsum um fermingu og einbeitt sér að golfinu eftir það. „Það besta við golfið er að þetta er eina sportið sem hægt er að stunda frá vöggu til grafar. Það er ekkert aldursbil.“