Markahrókur Helgi Guðjónsson hefur raðað inn mörkum í sumar.
Markahrókur Helgi Guðjónsson hefur raðað inn mörkum í sumar. — Morgunblaðið/Eggert
Njarðvík er áfram á botni Inkasso-deildar karla í fótbolta eftir 2:0-tap gegn Fram í Safamýri í gærkvöld. Njarðvíkingar eru með 11 stig, tveimur stigum á eftir Magna og þremur stigum á eftir Haukum. Framarar eru með 23 stig í 6.

Njarðvík er áfram á botni Inkasso-deildar karla í fótbolta eftir 2:0-tap gegn Fram í Safamýri í gærkvöld. Njarðvíkingar eru með 11 stig, tveimur stigum á eftir Magna og þremur stigum á eftir Haukum.

Framarar eru með 23 stig í 6. sæti en eru komnir of langt aftur úr í baráttu um efstu tvö sætin eftir 4 töp í síðustu 6 leikjum.

Hinn tvítugi Helgi Guðjónsson skoraði sitt 12. mark fyrir Fram í gær og er næstmarkahæstur í deildinni.